Þjóðaröryggisráð ræddi „fordæmalaust ástand“

Fundað var í þjóðar­öryggisráði í dag. Ofsaveður hefur leitt til rafmagns­leysis og fjarskipta­truflana víða.

Í dag var haldinn sérstakur fundur þjóðar­öryggisráðs vegna hinna fordæma­lausu aðstæðna sem upp hafa komið í framhaldi af ofsaveðri undan­farna daga.

Gestir fundarins voru Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferðmála, -iðnaðar og nýsköpunar­ráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra, ásamt ráðuneytis­stjórum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætis­ráðuneytinu.

Þá var fulltrúum almanna­varna­deildar Ríkis­lögreglu­stjóra boðið til fundarins ásamt fulltrúa Slysavarna­félagsins Lands­bjargar og Rauða kross Íslands og gerðu þeir grein fyrir stöðu mála, hver á sínu sviði, og samvinnu fjölmargra aðila um land allt.

Á fundinum var farið yfir afleiðingar veðursins, stöðu mála og næstu skref. „Ljóst er að miklar truflanir og bilanir hafa valdið rafmagns­leysi víða á Norður­landi. Fjar­skipti liggja niðri víða á sama svæði. Um fordæma­laust ástand er að ræða að þessu leyti og því þótti ráðlegt að boða þjóðar­öryggisráð saman og fara yfir stöðuna sbr. 2. mgr. 6.gr. laga um þjóðar­öryggisráð. Þess er vænst að viðgerðir á flutnings­kerfi muni taka nokkra daga,“ segir í tilkynningu frá forsætis­ráðuneytinu.

800 björgunarsveitarmenn að störfum

Staða mála verður rædd enn frekar á vettvangi ríkis­stjórnarinnar á morgun þar sem fjallað verður um nauðsynlegar aðgerðir til skemmri og lengri tíma litið, segir í tilkynningu.

Um 800 björgunar­sveitarmenn hafa verið við störf undan­farna daga vegna óveðursins, samkvæmt upplýsingum úr stöðu­skýrslu almanna­varna frá því í dag. Þar af hafa 224 komið að leit að pilti í Sölvadal, sem féll í Núpá þegar hann var að vinna við stíflu í ánni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár