50 ár frá því Churchill lést - Ræður sem breyttu gangi sögunnar

Í dag eru 50 ár frá því Winston Churchill lést, en hann er almennt álitinn einn áhrifa­mesti stjórn­málamaður sögunnar. Hann var forsætis­ráðherra Bretlands á stríðs­tímum, 1940 til 1945, og síðan aftur frá 1951 til 1955. Hann hlaut Nóbels­verðlaunin í bókmenntum árið 1953, fyrir magnaða greiningu sína á Seinni heim­styrjöldinni í skrifum sínum, í bland við tilfinninga­næma sjálfs­ævisögu sína.

Churchill hafði afar áhrifa­mikla nærveru, samkvæmt hinum ýmsu rituðu heimildum um hann og samtíma hans. Í bókinni The Gathering Storm, sem byggir meðal annars á einka­skjölum hans og breska hersins, sést vel heildar­myndin af gífurlega miklum áhrifum sem hann hafði á gang stríðsins, og þá staðreynd að nasistar töpuðu að lokum.

Hinn 4. júní 1940 hélt hann áhrifa­mikla ræðu í breska þinginu, þar sem hann stappaði stálinu í þjóð sína.

https://www.youtube.com/watch?v=N89Cpc4vl60

Ræða Churchill í bandaríska þinginu, í janúar 1942, hefur stundum verið nefnd áhrifa­mesta ræða 20. aldarinnar. Einkum orðin, um að nú ráði bandamenn örlögum sínum; „We are now the masters of our fate“, og undir­bygging þeirra. Með ræðunni vildi hann freista þess að ná full­kominni samstöðu með Bandaríkja­mönnum, með það fyrir augum að sigrast á nasistum. Og tókst ætlunar­verk sitt, svo um munaði.

Upptaka af hluta ræðunnar, sem breytti gangi sögunnar, er hér meðfylgjandi.

https://www.youtube.com/watch?v=R95rjk_nEI8

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár