Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum hverju sinni. Samkvæmt fjöl­miðlinum eru þetta tíu mikil­vægustu hlutir dagsins í dag:


  1. Yanis Varoufakis fjármála­ráðherra Grikk­lands mun óska eftir tíma­bundnu láni frá evru­hópnum svokallaða á fundi ríkjanna í dag. Grikkir eru sagðir vilja lán sem kemur þeim í gegnum næstu mánuði, og svo verði samið varanlega fyrir haustið.

  2. Meira frá Grikk­landi, því Alexis Tsipras forsætis­ráðherra stóð af sér vantrausts­tillögu sem lögð var fram á gríska þinginu í gær. Hann hlaut stuðning 162 þingmanna af 300.

  3. Apple er orðið fyrsta fyrirtæki heimsins sem er yfir 700 milljarða Bandaríkja­dala virði.

  4. Jon Stewart ætlar að hætta í The Daily Show síðar á þessu ári, en hann hefur verið stjórn­andi þáttarins í sautján ár.

  5. NBC hefur vikið frétta­þuli Nightly News, Brian Williams, frá störfum í hálft ár án launa. Williams hefur orðið uppvís að því að segja ekki rétt frá atburðum sem gerðust þegar hann fjallaði um Íraks­stríðið.

  6. Lögregla í Sydney hefur handtekið tvo karlmenn sem eru grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðju­verk með því að afhöfða mann. Í íbúð sem þeir voru hand­teknir í fannst meðal annars fáni Íslamska ríkisins.

  7. Bandaríkja­stjórn hefur staðfest að Kayla Jean Mueller, 26 ára gömul bandarísk kona sem var gísl Íslamska ríkisins, er látin.

  8. Halliburton ætlar að segja upp sjö prósentum starfs­manna sinna, eða á milli 5.000 og 6.500 einstaklingum, vegna lækkandi olíuverðs.

  9. Óttast er um framtíð Jemen eftir að ríkis­stjórn landsins hrökklaðist frá völdum fyrir helgina.

  10. Forseti Kína, Xi Jingping, mun fara í sína fyrstu opinberu heimsókn til Banda­ríkjanna í september.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár