Tíu deyja á dag í Úkraínu, strætóskýli og skólar meðal skotmarka

Sameinuðu þjóðirnar gagnrýna bæði stjórn­völd og uppreisnar­menn í Úkraínu vegna fjölda óbreyttra borgara sem hafa látið lífið í bardögum í austur­hluta landsins. Stríðandi fylkingarnar beri báðar ábyrgð á drápum á saklausu fólki.

SÞ hefur uppfært tölur um fjölda óbreyttra borgara sem hafa látist vegna ófriðarins í Austur-Úkraínu. 5.358 hafa látist frá því í apríl í fyrra. Þar af hafa 224 látist undan­farnar þrjár vikur, eða fleiri en 10 að meðaltali á hverjum degi, og 545 til viðbótar hafa særst vegna átakanna.

„Strætóskýli og almennings­samgöngur, markaðir, skólar og leik­skólar, spítalar og íbúða­hverfi eru orðin að vígvöllum og það brýtur augljós­lega gegn alþjóð­legum mannúðar­lögum,“ sagði Zeid Ra'ad Al Hussein, mann­réttinda­stjóri SÞ, í gær.

Eftir nokkuð rólegan desember­mánuð á svæðinu hófust bardagar á nýjan leik af mikilli hörku í janúar. Nýlegustu tilraunum til friðar­viðræðna var hætt um helgina.

Hingað til hefur Barack Obama Bandaríkja­forseti verið mótfallinn því að senda hernaðar­aðstoð til aðstoðar úkraínskum stjórn­völdum, en AP frétta­stofan segir frá því í dag að hátt­settur embættis­maður innan Bandaríkja­stjórnar hafi greint frétta­stofunni frá því að eftir atburði undan­farinna vikna sé nú verið að endur­skoða þá stefnu.

Angela Merkel Þýska­lands­kanslari sagði hins vegar í Berlín í dag að Þjóð­verjar myndu ekki taka þátt í að senda vopn til Úkraínu, heldur ætli hún að einbeita sér að því að frið­samleg lausn finnist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár