Bandaríkin eru stærsti ógnvaldurinn

Óútreikn­anleg framkoma Donalds Trump gagnvart Grænlandi vekur ekki aðeins spurningar um framtíð sjálf­stjórnar eyjunnar heldur hefur hún líka grafið undan þeirri öryggis­skipan sem norðurslóðir hafa byggt á í áratugi. Þrátt fyrir að líkur á beinni innrás eða innlimun séu enn litlar, segir sérfræðingur við Háskóla Grænlands að sú staðreynd að þær séu ekki „núll” breyti öllu. „Það eitt að þurfa að taka slíka sviðsmynd alvarlega er alvarlegt í sjálfu sér,“ segir dr. Rasmus Nielsen. „Við erum vön því að stórveldi virði ákveðin grunn­viðmið. Trump gerir það ekki.“

Dr. Rasmus Leander Nielsen er forstöðu­maður Miðstöðvar um utanríkis- og öryggismál í háskólanum í Nuuk og prófessor við félags­vísinda- og hagfræði­deild norðurslóða. Þar sem hann situr á skrif­stofu sinni bregst hann við með hlátra­sköllum þegar hann er spurður að því hvort Grænland sé öruggt: „Nei.“

Þegar hláturinn fjarar út segir hann: „Okkur líður eins og við getum verið aðeins öruggari núna en undan­farna daga, en um leið vitum við að þótt ástandið róist um stund getur forseti Banda­ríkjanna síðan sagt eitthvað allt annað.“

Á blaðamanna­fundi með forsætis­ráðherra Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, var hann inntur svara við því hvort hann treysti hundrað prósent orðum Trumps þess efnis að hann myndi ekki taka Grænland með hervaldi, líkt og hann lýsti yfir á Davos. Fram að því hafði Trump ekki útilokað þann möguleika. Forsætis­ráðherrann kvaðst verða að trúa því – en hvað segir fræði­maðurinn? „Nei.“ Því trúir hann ekki. „En líkurnar …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíðarinnar – lifði af sjálfsvígs­tilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upplýsingum, greiningum og hugsunum til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Grænlands, ungur hugsjóna­maður sem nýtir samfélags­miðlana til að fá fólk til að hugsa og setja hlutina í rétt samhengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfsvígs­tilraun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um tilfinningar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeldis­fullur“

Þegar Embla Kristjáns­dóttir hóf sambúð með Niels Thomassen fékk hún að kynnast nýrri hlið á manninum sem hún elskaði, þar sem stjórnsemi, afbrýðisemi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeldinu, axlaði ábyrgð og hefur unnið þrotlaust í sjálfum sér síðasta áratug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karlmenn sem glíma við sama vanda að tjá tilfinningar sínar og standa berskjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár