Apple getur borgað allt Apollo verkefnið með lausafé sínu

Verð­mætasta fyrirtæki heims, hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Apple, á nægt lausafé til þess að greiða allt Apollo verkefnið hjá NASA, en það er metið á 131,4 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 18.300 milljörðum króna. Þetta kemur fram á vef Business Insider.

Eftir jóla­vertíðina á síðasta ári, í febrúar síðastliðnum, sendi Apple frá sér tilkynningu til kaup­hallar þar sem fram kemur að félagið hafi átt 179 milljarða Bandaríkja­dali í lausu fé frá rekstri, þann 27. desember í fyrra, eða sem nemur 25 þúsund milljörðum króna. Fyrir afganginn gæti Apple rekið hagkerfi Lúxemborg í meira en hálft ár, ef mið er tekið af árlegri lands­framleiðslu í Lúxemborg, en hún nam rúmlega sextíu milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur 8.400 milljörðum króna, fyrra.

Velgengni Apple undan­farin misseri hefur verið með ólíkindum, og eru fá dæmi um viðlíka arðsemi og fyrir­tækið sýnt á síðustu tveimur ársfjórðungum. Á síðustu þremur mánuðum ársins í fyrra hagnaðist fyrir­tækið um átján milljarða Bandaríkja­dala, en heildar­tekjur á því tímabili námu 74,6 milljörðum Bandaríkja­dala. Til saman­burðar þá námu saman­lagðar tekjur stór­fyrir­tækjanna Microsoft, IBM og Proctor & Gamble, 72,9 milljörðum Bandaríkja­dala.

Apple kynnti 9. mars síðastliðinn nýjustu vörulínu sína, snjall­úrin, en þau verða komin í almenna sölu í apríl­mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár