Grikkir kjósa um hvort haldið skuli áfram með efnahagsáætlunina

Grísk stjórn­völd, með Alexis Tsipras forsætis­ráðherra og leiðtoga Syriza flokksins í broddi fylkingar, hafa boðað til atkvæða­greiðslu í gríska þinginu á næst­komandi föstudag, þar sem kosið verður um hvort haldi skuli áfram með efnahags­áætlunina í samvinnu við Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn og Evrópu­sambandið. Áætlunin, sem felur í sér 240 milljarða evra neyðar­aðstoð, stór­felldan niður­skurð ríkis­reksturs og eignasölu að hálfu hins opinbera, hefur verið umdeild í Grikk­landi, svo ekki sé fastar að orðið kveðið, og vann Syriza mikinn kosninga­sigur meðal annars út á loforð um að hætta að vinna eftir áætluninni, endur­fjármagna skuldir og skilyrða endur­greiðslur við hagvaxtar­þróun í landinu, og stoppa niður­skurð hjá hinu opinbera.

Samninga­viðræður fjármála­ráðherra Evrópu­sambandsins og Grikkja hafa ekki gengið vel, og hefur Evrópu­sambandið ekki verið tilbúið til þess að fallast á skilyrði stjórn­valda, sem vilja þó forðast það að þurfa yfirgefa evruna. Grikkir höfnuðu í dag tilboði Evrópu­sambandsins um að fram­lengja efnahags­áætlunina fyrr­nefndu, og lét Tsipras hafa það eftir sér að Grikkir væru ekki að flýta sér, þrátt fyrir að áætlunin renni að óbreytt út í lok mánaðarins.

Breska ríkis­útvarpið BBC, greindi frá því nú undir kvöld, að Tsipras væri að vinna að því að gríska ríkið fái lána­greiðslu til sex mánaða til þess að geta klárað viðræður við kröfuhafa sína, einkum Evrópu­sambands­ríkin og Seðla­banka Evrópu, með það að markmiði að laga efnahags­áætlunina betur að grískum hagsmunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár