Að lokum hvarf hann úr augsýn - Átakanleg frásögn

Vefsíðan Humans of New York, sem hefur 15,3 milljónir fylgjenda á Facebook, er þessa dagana að birta frásagnir flótta­manna sem freista þess að hefja nýtt líf á nýjum stað, eftir flótta frá stríðs­hrjáðum svæðum, einkum Sýrlandi, Írak og Afganistan.

Margar frásagnir sem birst hafa á vefsíðunni eru átakanlegar, en spegla um leið ömurlegan veruleika fólks sem nú flýr í milljóna­tali stríðs­hrjáð svæði. Talið er að um 20 til 25 milljónir séu nú á flótta frá heimilum sínum, ýmist innan eða utan landamæra heima­landa sinna. Verst er ástandið í Sýrlandi þar sem um helmingur af ríflega 22 milljónum íbúa hefur flúið heimili sín vegna borgar­styrjaldarinnar í landinu. Að minnsta kosti 250 þúsund manns hafa látið lífið í Sýrlandi frá því hún hófst og meira en 800 þúsund slasast.

Í nýjustu frásögninni á vefnum lýsir ung kona því hvernig hún og maður hennar reyndu í örvæntingu að komast til Evrópu á þétt­hlöðnum báti, en samtals voru 152 um borð í bátnum. Margir vildu snúa við þegar þeir sáu hversu lítill báturinn var, en smyglarar sögðu þá að enginn gæti fengið endur­greitt ef hann hætti við förina. Þar sem þau höfðu fórnað aleiguna til þess að komast á leiðar­enda, lögðu þau í hann með bátnum.





“My hus­band and I sold everyt­hing we had to afford the journey. We worked 15 hours a day in Turkey until we had enough...

Posted by Humans of New York on Monday, September 28, 2015

Á leiðinni fórst báturinn, og fólk reyndi að synda í land. Eigin­maður konunnar örgmagnaðist á leiðinni og drukknaði, en björgunar­bátur fann konuna í tæka tíð og bjargaði henni.

Frásagnir sem þessar eru tíðar af svæðinu við Miðjarðarhaf, þessa dagana, en nú dvelja um 300 þúsund manns í flóttamanna­búðum í Grikk­landi og Ítalíu. Þjóðir heimsins leita nú leiða til þess að efla neyðar­aðstoð við flótta­menn en enn sem komið er hún órafjarri því að teljast fullnægjandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár