Sue Ann innleysti 127 milljarða ávísun að lokum

Sue Ann Arnall, fyrr­verandi eiginkona Harold Hamm, forstjóra olíu­vinnslu­fyrir­tækisins Continental Resources, hefur fengið 974,8 milljónir Bandaríkja­dala, tæplega 127 milljarða króna, greidda inn á banka­reikning sinn frá Hamm vegna skilnaðar þeirra.

Sue Ann hafði áður neitað að taka við peningunum, en Michael Burrage, lögmaður Sue Ann, staðfesti það við CNBC, að peningarnir hefðu verið greiddir inn á reikning hennar í morgun.

Ekki er ljóst ennþá hvort þessi greiðsla frá Hamm verður til þess að ljúka deilum þeirra fyrr­verandi hjóna. Hamm er með auðugustu mönnum heims, en verðmæti hans eru metin á meira en tíu milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega 1.300 milljörðum króna. Eignir hans eru að stóru leyti bundnar í hluta­bréfum í Continental Resources.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár