Launahækkanir kjararáðs verða ekki teknar til baka

Tugprósenta launa­hækkanir þingmanna, ráðherra og annarra hátt­settra embættis­manna verða ekki teknar til baka með lögum. Engar efnislegar forsendur eru fyrir því að lækka almennt laun þeirra sem heyra undir kjararáð til framtíðar.

Starfshópurinn telur ekki fært, né að efnislegar forsendur séu fyrir því, að lækka laun þingmanna og ráðherra til framtíðar.
Starfs­hóp­ur­inn telur ekki fært, né að efn­is­legar for­sendur séu fyrir því, að lækka laun þing­manna og ráð­herra til fram­tíðar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Starfs­hópur um málefni kjararáðs telur það ekki færa leið að setja lög um aftur­virka endur­skoðun ákvarðana kjararáðs sem hefðu í för með sér endur­greiðslu­kröfu. Þá telur meirihluti hópsins heldur ekki fært né efnislegar forsendur fyrir því að lækka almennt laun þeirra sem eiga undir kjararáð til framtíðar. „Meirihlutinn bendir á að ef laun þeirra verða óbreytt til ársloka 2018 myndi kjararáðs­hópurinn að meðaltali taka hækkunum sem ekki eru í ósamræmi við almenna launa­þróun. Fulltrúi ASÍ í starfs­hópnum telur það færa leið að lækka með lögum laun embættis­manna og kjörinna fulltrúa.“

Þetta kemur fram í tillögum sem fylgja skýrslu hópsins sem birt var í dag.

Það þýðir til að mynda að laun þingmanna og ráðherra, sem voru hækkuð um tugi prósenta með ákvörðun kjararáðs haustið 2016, verða ekki lækkuð með laga­setningu.

Hópurinn starfaði í tæpan mánuð

Hópurinn var skipaður 19. janúar síðastliðinn. Hlutverk hans var að bera saman fyr­ir­komu­lag um ákvörðun launa hjá kjörnum full­trú­um, dóm­urum og emb­ætt­is­mönnum í nágranna­löndum og leggja fram til­lögur að breyttu fyr­ir­komu­lagi launa­á­kvarð­ana kjara­ráðs, sé annað fyr­ir­komu­lag talið lík­legra til betri sáttar í þjóð­fé­lag­inu til fram­tíðar um ákvörðun launa þeirra sem stöðu sinnar vegna njóta ekki samn­ings­rétt­ar.

Auk þess á starfs­hóp­ur­inn að taka til skoð­unar úrskurði kjara­ráðs, meta með hlið­sjón af launa­setn­ingu og launa­breyt­ingum þeirra stétta sem samn­ings­frelsis njóta og þeirri launa­stefnu sem samið var um við meg­in­þorra launa­fólks og eftir atvikum leggja fram til­lögur um úrbæt­ur.

Ástæðan var það mikla launa­skrif sem verið hefur hjá hópum sem heyra undir kjararáð, sem eru æðstu stjórn­endur hjá ríkinu og dóttur­fyrirtækjum þess.

Æðstu embættismenn þjóðarinnar hækkað um tugi prósenta

Mesta athygli vakti ákvörðun kjara­ráðs frá því í októ­ber 2016, þegar ráðið ákvað að hækka laun for­­seta Íslands, þing­far­­ar­­kaup alþing­is­­manna og laun ráð­herra.

Sam­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­ar­­kaup alþing­is­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­sæt­is­ráð­herra að með­­­töldu þing­far­­ar­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­arra ráð­herra að með­­­töldu þing­far­­ar­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­lega 1,5 millj­­ónir en laun for­­seta voru tæpar 2,5 millj­­ón­­ir. Laun þing­­­manna hækk­­­uðu hlut­­­falls­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­sent.

Aðstoðar­menn ráðherra hafa líka fengið duglega launa­hækkun á undan­förnum árum. Sumarið 2016 voru laun skrif­stofustjóra í ráðuneytum hækkuð um allt að 35 prósent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­ar­manna, sem miða við þau laun, um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Í des­em­ber hækk­aði kjara­ráð svo laun bisk­­ups, Agn­­esar Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, um tugi pró­­senta. Í úrskurð­i vegna þessa kom fram að biskup skuli hafa tæp­­lega 1,2 millj­­ónir í mán­að­­ar­­laun auk 40 fastra yfir­­vinn­u­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði.

Hækk­­unin var aft­­ur­­virk til 1. jan­úar 2017, sam­­kvæmt úrskurð­in­­um. Um ára­mót fékk biskup því ein­greiðslu fyrir síð­­asta árið en sú upp­­hæð nemur 3,3 millj­­ónir króna.

Launaþróun víkur ekki merkjanlega frá almennri þróun

Helstu niður­stöður starfs­hópsins eru þær að launa­ákvarðanir kjararáðs hafi ítrekað skapað ósætti og leitt til óróa á vinnu­markaði. Lögbundið viðmið Kjaradóms og síðar kjararáðs hafi verið óskýr og ósamrýmanleg. Alþingi hefur ítrekað hlutast til um endur­skoðun úrskurða. Starfs­hópurinn telur því margt mæla með því að gjör­breyta núgildandi fyrir­komulagi.

Hópurinn telur að gagnsæi og fyrirsjáanleika skorta um launa­ákvarðanir og raun­veruleg laun. Hann bendir á að í nágranna­löndunum séu ákvarðanir um laun kjörinna fulltrúa nánast undan­tekningar­laust teknar einu sinni á ári. Endur­skoðun fylgir skilgreindri launa­þróun næsta ár á undan og að saman­burður á launum æðstu embættis­manna, dómara og kjörinna fulltrúa bendi ekki til þess að þau víki verulega frá því sem er í samanburðar­löndunum.

Þá segir í niður­stöðum hópsins að launa­þróun þeirra sem eigi undir kjararáð víki ekki merkjanlega frá almennri þróun launa á tíma­bilinu 2006-2018. Á því tímabili sem kveðið er um í ramma­samkomulagi aðila vinnu­markaðarins og ríkisins hafi laun þeirra hækkað um 35-64 prósent en almenn þróun launa virðist liggja á bilinu 43-48 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár