Snafsarnir Gammel Dansk og Álaborgar-ákavíti orðnir norskir

Hold da op! (hættu nú alveg) var fyrir­sögnin í einu dönsku dagblað­anna þegar frá því var greint fyrir nokkru að dönsku „þjóðar­drykkirnir“ Gammel Dansk, Álaborgar-ákavíti og tólf aðrar þekktar danskar snafsa­tegundir yrðu eftirleiðis fram­leiddir í Noregi. „Í Noregi, af öllum löndum“ sagði í umfjöllun þessa sama blaðs og hneykslunar­tónninn skein í gegn.

Síðustu flöskurnar af Álaborgar-ákavítinu og hinum þrettán tegundunum sem fram­leiddar hafa verið í verksmiðjum De Danske Spritfabrikker í Álaborg voru sendar í verslanir í byrjun vikunnar. Þar með er lokið sögu sem hófst árið 1881 þegar De Danske Spritfabrikker (DDSF) voru stofnaðar. Saga snafsa­framleiðslu í Álaborg er reyndar mun lengri en um 1840 sameinuðust nokkur fyrirtæki sem fram­leiddu sterk vín og urðu á fáum árum stærst á þessu sviði í Danmörku.

Fram­leiðslan jókst ört og jafnframt fækkaði öðrum fram­leiðendum. Árið 1923 var svo komið að allar verksmiðjur í landinu, sem fram­leiddu sterk vín, voru í eigu DDSF. Fyrir­tækið fékk sama ár einkarétt á fram­leiðslu sterkra vína og sömuleiðis til að framleiða pressuger. Þetta einka­leyfi var í gildi fram til 1. janúar 1973 þegar Danmörk varð aðili að Efnahags­bandalagi Evrópu, síðar Evrópu­sambandinu.

Verksmiðjubyggingarnar í Álaborg eru listaverk


Árið 1931 flutt­ist starf­semi DDSF í nýbyggðar verk­smiðjur í vest­ur­hluta Ála­borgar. Þekktur danskur arki­tekt Alf Cock-Clausen teikn­aði verk­smiðju­húsin. Þar var ekk­ert til sparað enda eru bygg­ing­arnar, bæði að utan og innan nær óbreytt í dag, 84 árum síðar. Það sama gildir um fram­leiðslu­bún­að­inn enda sagði for­stjór­inn þegar verk­smiðjan var tekin í notkun að hér væri ekki tjaldað til einnar nætur. Verk­smiðju­húsin, með tækjum og tólum, eru á lista dönsku Minja­stofn­un­ar­innar (Kultur­arvs­styrel­sen) ásamt 25 öðrum bygg­ingum og verk­smiðju­hverfum.

Álaborgar-ákavítið óbreytt síðan 1846


Þekkt­asti, og mest seldi drykk­ur­inn sem DDSF fram­leiðir er Taffel Akvavit, sem í dag­legu tali gengur undir nafn­inu Rød Aalborg. Þessi vin­sæli snafs var fyrst fram­leiddur 1846 og þótt margt hafi breyst í henni ver­öld síðan þá gildir það ekki um þann rauða (sem er reyndar ekki rauður), þar hefur engu verið breytt. Árið 2002 var sá rauði val­inn besta áka­víti í þekkt­ustu vín­keppni í heimi.

Snafsarnir sem DDSF fram­leiðir eiga hver um sig sína aðdáendur og hafa flestir verið gerðir eftir óbreyttri forskrift áratugum saman.

Gammel Dansk er ekki mjög gamall


Þótt nafnið Gammel Dansk, sem margir þekkja, hljómi eins og nafn á mjög gömlum drykk er sú ekki raunin. Þessi vin­sæli kryddsnafs kom á mark­að­inn 1964. Skömmu áður hafði DDSF sett á mark­að­inn annan kryddsnafs sem seld­ist mjög lítið og fram­leiðsl­unni var fljót­lega hætt. Stjórn fyr­ir­tæk­is­ins ákvað að gera aðra til­raun. Snafsinn fékk nafnið Gammel Dansk, krydd­aður snafs og kynntur sem holl und­ir­staða í mag­ann að morgni dags. Án þess að slíkt hafi bein­línis verið sannað á Gammel Dansk marga aðdá­endur sem telja hann ákjós­an­legt upp­haf dags­ins. Margir Danir nota hann líka í upp­hafi hátíð­ar­máls­verðar, ómissandi á veislu­borðið segja þeir. Mikið var lagt í hönnun umbúð­anna, lögun flösk­unnar er sér­stök, ólík flestum öðrum.

Af hverju til Noregs?


Þessari spurn­ingu veltu margir Danir fyrir sér þegar fréttir af flutn­ingi DDSF til Noregs bár­ust. Svarið er ein­fald­lega að núver­andi eig­endur DDFS, Arcus Gruppen, ákváðu að flytja fram­leiðsl­una til Noregs. Hag­kvæmni réði að sögn þeirri ákvörðun. Tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins sagði að neyt­endur þyrftu ekki að hafa neinar áhyggjur, drykkirnir yrðu áfram þeir sömu þótt notað yrði norskt vatn við fram­leiðsl­una. Norðmenn hefðu líka langa hefð á þessu sviði, og kynnu vel að meta snafs þótt hjá þeim sé van­inn að drekka hann volgan en ekki vel kældan eins og Danir vilja hafa hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár