Sanders og Trump unnu í New Hampshire

Demó­kratinn Bernie Sanders og repúblikaninn Donald Trump voru sigurveg­arar kosninganna í New Hampshire í gær, sem voru hluti af forvali flokkanna fyrir forseta­kosningarnar í Banda­ríkjunum. Sanders fékk tæplega 60 prósent fylgi á meðan Hillary Clinton fékk tæplega 40 prósent atkvæða hjá demó­krötum.

Hjá repúblikönum fékk Donald Trump 34,5 prósent og John Kasich með 16,3 prósent. Ted Cruz, sem sigraði kosningarnar í Iowa, var með 11,5 prósent fylgi.

Bryndís Ísfold Hlöðvers­dóttir veitti lesendum Kjarnans innsýn í spennuna sem einkennir harða baráttu Bernie Sanders og Hillary Clinton í frétta­skýringu í gær.

Trump óskaði Sanders til hamingju

Sigur Sanders yfir Clinton er í samræmi við spár greinenda og mjög mikil­vægur fyrir öldungar­deildar­þingmanninn þar sem næstu kosningar í forvalinu fara fram í ríkjum í suður­hluta Banda­ríkjanna, þar sem staða Clinton er sterk. Yfirburðar­sigur Trump er rakinn til þess að kjósendur repúblikana hafi mætt mjög vel á kjörstað og fylgi hans nú er mjög í takt við það sem fylgi hans mælist á landsvísu í könnunum.

Sanders, sem er vinstri­sinnaðri stjórn­málamaður en Bandaríkja­menn eiga að venjast í forseta­slagnum, en myndi kallast jafnaðar­maður á Norður­löndum, sagði við stuðnings­menn sína eftir sigurinn að þau hefðu saman sent mjög sterk skilaboð sem muni heyrast frá Washington til Wall Street. Skila­boðin voru að ríkis­stjórn landsins tilheyrði öllum íbúum þess.

Trump var óvenju­lega tilfinninga­næmur í sinni ræðu, samkvæmt frásögn the Guardian. Hann hóf hana með því að þakka látnum foreldrum sínum og systkinum. Trump óskaði Berine Sanders meira að segja til hamingju með sinn sigur, en með sínum hætti. „Við þurfum að óska honum til hamingju þótt okkur líki ekki við það. Hann vill gefa burt landið okkar. Við ætlum ekki að láta það gerast."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár