Tugir útsettir fyrir smiti eftir hópsmit í búsetuúrræði Útlendingastofnunar

Átta umsækjendur um alþjóð­lega vernd hafa greinst smitaðir af Covid-19 og fleiri eru útsettir. Hælis­leitendurnir búa í búsetu­úrræði á vegum Útlendinga­stofnunnar en stofnunin hefur áður verið gagnrýnd fyrir aðbúnað í tengslum við faraldurinn.

Hópsmit hefur komið upp í búsetu­úrræði Útlendinga­stofnunnar í Hafna­fjarðarbæ, fyrir umsækjendur um alþjóða­lega vernd, en átta manns sem þar búa eru smitaðir af Covid-19 og fleiri eru í sóttkví. 

Þeir átta sem smituðust dvelja nú í Farsótta­húsinu á Rauðarár­stíg en Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðu­maður hússins, stað­festir í samtali við Stundina að þessir átta einstaklingar séu ekki allir úr sömu fjöl­skyldu. „Alls komu tólf einstaklingar í Farsótta­húsið í gær úr þessum tveimur húsum í Hafnar­firði og þeir fóru allir í einangrun að beiðni Covid deildar. Átta þeirra eru smitaðir en svo eru einhverjir þeirra börn sem koma í fylgd sýktra foreldra en svo er einnig sýkt barn í húsinu ásamt foreldrum sínum sem ekki eru sýktir.“

Á þriðja tug eru útsettir fyrir smiti vegna hópsmitsins og eru nú í sóttkví. Þetta stað­festir Jóhann K. Jóhannsson, samskipta­stjóri almanna­varna­deildar lögreglunnar í samtali við Stundina. Þá segir hann skýrast á næstu dögum hvort fleiri íbúar reynist smitaðir.

Þórhildur Ósk Hagalín, upplýsinga­fulltrúi Útlendinga­stofnunnar, segir að búsetu­úrræðið sé í tveimur fjölbýlis­húsum og í þeim búi tæplega sextíu manns en hún viti ekki nákvæmlega hvernig þeir sextíu skiptast í húsin tvö. Í báðum húsum eru nú íbúar sem eru í sóttkví vegna hópsmitsins.

Hælisleitendur segja aðbúnað hræðilegan

Áður hafa búsetu­úrræði á vegum stofnunarinnar ratað í fjölmiðla varðandi Covid-19 smithættu.

Í umfjöllun Stundarinnar frá 26. október síðastliðnum, kom fram að heimilis­menn í búsetu­úrræði Útlendinga­stofnunar á Ásbrú, töldu aðstæður sínar hafa versnað til muna vegna Covid, þeir höfðu ekki fengið viðunandi búnað til að verja sig gegn smiti, gátu ekki yfirgefið herbergi sín til að elda sér mat og fengu því mat frá Útlendinga­stofnun tvisvar á dag en náðu þeir ekki í mat á tilsettum tíma fengu þeir ekkert. 

„Við þjáumst af hungri vegna skorts á mat og einnig vegna þess hve óviðunandi hann er. Menn hafa tekið upp á því að biðja um að fá að vera endur­sendir til Grikk­lands, stað sem þeir flúður til að sækja öryggi hingað.“ Svona lýsti einn heimilis­maður aðstæðum á Ásbrú í október síðastliðnum.

Frétta­blaðið greindi frá því þriðjudaginn 8. desember að íbúar í húsnæði Útlendinga­stofnunar á Grensás­vegi lýstu aðstæðum sínum sem hræðilegum og að þeir óttuðust um að smit kæmi upp í húsnæðinu vegna skorts á sótt­vörnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár