Erum ekki sérfræðingar í gulli segir danska lögreglan

Frumvarp dönsku ríkis­stjórnarinnar um að heimilt verði að gera upptækar eigur flótta­fólks sem kemur til Danmerkur hefur vakið mikla athygli og einskorðast ekki við Danmörku og nágranna­löndin. Bandaríska dagblaðið Washington Post sagði ítarlega frá þessum fyrir­ætlunum dönsku stjórnarinnar og sagði þær vekja upp óhugnanlegar minningar frá síðari heims­styrjöld.

Frum­varpið nýtur stuðnings meirihluta þingmanna. Sá hluti þess sem snýst um persónulegar eigur sem fólk hefur með sér við komuna til Danmerkur segir að; „venju­legir hlutir, eins og úr og farsímar skuli ekki gerðir upptækir. Sama gildir um hluti sem hafa sérstakt gildi fyrir eigandann, nema því aðeins að verðmæti hlutarins, eða hlutanna, sé svo mikið að ekki telst eðlilegt að undan­skilja það. Reiðufé sem nemur um það bil 3 þúsund dönskum krónum (tæplega 60 þúsund íslenskar) fær eigandinn að halda, peninga umfram það skal lagt hald á.

Inger Støjberg ráðherra innflytjenda­mála hefur í viðtölum sagt að þetta séu sann­gjarnar reglur, í Danmörku sé stefnan sú að eignafólk, borgi að ákveðnu marki fyrir þá þjónustu sem það njóti af hálfu samfélagsins (einkum gegnum skatt­kerfið) en þeir sem minna mega sín fái sömu þjónustu á öllum sviðum. Ráðherrann hefur bent á að eðlilegt sé að sömu reglur gildi um fólk sem kemur frá öðrum löndum.

Margir þingmenn lýsa efasemdum við eignaupptökuna

Eins og áður sagði nýtur frum­varpið stuðnings mikils meirihluta í þinginu en eftir að umræðan um eigna­upptökuna gaus upp hafa margir þingmenn lýst efasemdum sínum um þann hluta frum­varpsins. Segja eitthvað á þá leið að mjög skýrar línur þurfi að marka varðandi hvað megi og hvað megi ekki. Sumir úr þessum hópi segja öldungis fráleitt að hringar verði rifnir af fingrum fólks, slíkt komi einfald­lega ekki til greina. Sé hrein mann­vonska og lítilsvirðing við það fólk sem flúið hefur heimaland sitt og á í mörgum tilvikum ekkert annað en fötin sem sem það stendur í og nokkra persónu­lega hluti, til dæmis hringa.Talsmenn Danska þjóðar­flokksins, sem styður frum­varpið, sjá ekki ástæðu til að vera með sérstaka fyrirvara um hvað megi og hvað ekki, þar eigi verðmæta­matið að ráða.

Við erum ekki matsmenn segir lögreglan

Innan­ríkis­ráðherrann hefur sagt að það verði verk lögreglu að skoða eigur þeirra sem komi til landsins og meta hvort og hvað skuli lagt hald á. Þessar hugmyndir mælast ekki vel fyrir innan lögreglunnar. Formaður Lands­sambands lögreglu­manna, Claus Oxfeldt, hefur lýst því yfir að þetta sé verkefni sem geti tæpast talist í verka­hring lögreglu­þjóna. „Við erum ekki sérfræðingar í því að meta verðmæti og getum ekki metið hvort tiltekinn hringur kosti tíu þúsund krónur eða milljón.” Inger Støjberg ráðherra hefur svarað því til að hún telji að lögreglu­menn sjái nú nokk hvort um sé að ræða ódýrt glingur eða glóandi gull. Líka komi til greina að fá sérstaka matsmenn, sérfræðinga, til verksins. Einn sérfræðingur sem danskt blað hafði samband við sagðist ekki ætla að taka að sér slíkt skítverk (beskidt stykke arbejde) yrði til sín leitað.

Saumað að ráðherranum

Danskir fjöl­miðlar hafa undan­farna daga gengið hart að Inger Støjberg ráðherra og krafist undanbragða­lausra svara varðandi skartgripa­málið, sem þeir kalla líka demanta­málið. Ráðherrann hefur staðið fast á sínu og sagt að stjórnin standi í einu og öllu við frum­varpið.

Í gær var tónninn þó örlítið breyttur. Þá sagði ráðherrann í viðtölum við danska miðla eitthvað á þá leið að hún treysti lögreglunni fullkomlega fyrir að fara með þetta mál og annast mat á skart­gripum og öðru slíku. Og sagði svo að lögreglan hefði líka það val að spyrja ekki. Bætti svo við að flest fólk væri heiðarlegt og ef spurt væri við komuna til landsins hvort það hefði í fórum sínum verðmæti myndi það svara heiðar­lega. Þessi orð vöktu athygli frétta­manna sem túlkuðu þau á þann veg að með þeim væri ráðherrann að draga í land og slá á gagnrýnis­raddirnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár