Herskáir Talíbanar drápu 145, þar af 132 börn

Herskáir Talíbanar í Pakistan gerðu árás á skóla í Peshawar í Pakistan í morgun sem kostaði 145 lífið, þar af 132 börn. Ekki er ólíklegt að tala látinna muni hækka, samkvæmt frásögnum fjölmiðla. Samtals eru 114 slasaðir og særðir en árásar­mennirnir voru vopnaðir skot­vopnum með sprengju­vesti um sig og strá­felldu börn, kennara og starfs­fólk með skothríð. Þeir færðu sig á milli skóla­stofa og reyndu að skjóta alla sem þeir sáu, samkvæmt frásögn vitna og eftir­lifenda sem BBC ræðir við í umfjöllun sinni.

Samtals voru 132 börn drepin í miskunnar­lausri árás byssumana úr röðum Talíbana í Pakistan. Mynd: AFP

Samtals voru 132 börn drepin í miskunnarlausri árás byssumana úr röðum Talíbana í Pakistan. Mynd: AFP
Samtals voru 132 börn drepin í mis­kunn­ar­lausri árás byssumana úr röðum Talíbana í Pakistan. Mynd: AFP

Herinn í Pakistan hefur nú fellt alla þá sem að árásinni stóðu eftir átta tíma bardaga, samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC. Mikil ringul­reið er á staðnum, einkum á sjúkra­húsum, þar sem skelfingar­lostnir foreldrar barna í skólanum reyna að ná sambandi við börn sín eða komast að því hvort þau eru á meðal þeirra sem létust. Lík hafa verið borin út í kistum af sjúkra­húsinu í Peshawar, en mikið öngþveiti hefur skapast við spítalann.

Þetta er mann­skæðasta hryðjuverka­árás Talíbana til þessa í Pakistan. Forsætis­ráðherra Pakistan, Nawaz Sharif, hefur þegar lýst yfir þjóðar­sorg og þjóðar­leiðtogar um allan heim hafa fordæmt voða­verkin.

Uppfært: New York Times greinir frá því að tala látinna sé komin upp í 145, og mögulegt sé að hún hækki enn þar sem margir þeirra særðu eru með lífs­hættulega áverka. Í fyrstu útgáfu fréttarinnar var frá því greint að 141 væri látinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár