Norskur lögreglustjóri á móti vopnavæðingu vegna hryðjuverkaógnar

Norski lögreglu­stjórinn Arne Hammers­mark geldur varhug við að norska lögreglan vopna­væðist frekar vegna hótanna ISIS samtak­anna, betur þekkt sem Íslamska ríkið. Ekki sé hægt að nota óljósar hótanir hryðjuverka­samtakanna sem afsökun fyrir því að vopna almenna lögreglu­menn. Norski frétta­miðillinn Dagbladet.no greinir frá málinu.

Norsk lögreglu­yfirvöld óskuðu þess á dögunum að almennir lögreglu­menn yrðu vopnaðir eftir almennt orðaða hótun frá hryðjuverka­samtökunum ISIS. Stjórn­völd í Noregi féllust á beiðni lögreglu­yfirvalda og heimiluðu aukinn vopnaburð lögreglu­manna til fjögurra vikna.

Óvanir vopnunum


Arne Hammers­mark, lög­reglu­stjóri í Gudbrands­da­len, gagn­rýnir þetta mjög, að því er fram kemur í áður­nefndri frétt Dag­bla­det. Hann segir almenna lög­reglu­menn ekki þjálf­aða til að bera skot­vopn dags dag­lega, þeir séu vanir því að vera óvopn­aðir og bregð­ast við aðstæðum í sam­ræmi við það.

Ef vopnaðir einstaklingar hóti lögreglu eða öðrum sé því yfirleitt reynt að fara út fyrir mesta hættu­svæðið og vopnum ekki beint nema aðstæður kalli á það. Gefa þurfi út sérstakt leyfi til vopna­burðar og lögreglu­menn fái þannig tíma til að undirbúa sig andlega undir möguleg átök. Hammers­mark óttast að lögreglu­menn sem beri vopn daglega bregðist við slíkum aðstæðum með öðrum hætti, sem geti mögulega skapað meiri hættu fyrir þá og aðra.

Varhugaverð þróun, sem ekki verði svo glatt snúið við


Hammers­mark segir að umræðan um almennan vopna­burð lög­reglu þurfi að snú­ast um hvers­dags­legri hluti, eins og þá sem glími við geð­ræn vanda­mál eða glæpa­menn, frekar en það sem hryðju­verka­sam­tök í útlöndum segi hverju sinni. Ekki sé hægt að nota hót­anir þeirra sem afsökun til að vopna almenna lög­reglu­menn. „Við getum ekki tekið ákvörðun um vopna­burð út frá yfir­lýs­ingum IS-liða í Írak eða Sýrlandi,“ er haft eftir Hammers­mark í áður­nefndri frétt Dag­bla­det.

Þá telur Hammers­mark að erfitt gæti reynst að snúa þróuninni við, það er að afvopna almenna lögreglu­menn, verði vopna­burður þeirra aukinn.

Íslenska lögreglan vill vopn vegna hryðjuverkaógnar


Jón Bjartmarz, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði í sam­tali við mbl.is á dög­unum, að lög­reglan á Íslandi geti ekki leyft sér að horfa fram hjá vax­andi hættu af hryðju­verkum í Evrópu, meðal ann­ars vegna Íslamska rík­is­ins. Af þeim völdum vinni lög­reglan nú að grein­ar­gerð til inn­an­rík­is­ráð­herra um aukna þörf hennar fyrir vopn og búnað.

Eins og fram hefur komið ákvað Landhelgis­gæslan að skila 250 MP5 hríð­skotabyssum aftur til norska hersins, eftir að herinn fór fram á greiðslu fyrir byssurnar. Fram að því hafði Landhelgis­gæslan fullyrt að um gjöf frá norskum hermála­yfirvöldum væri að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár