Eyþór vildi taka sæti forsætisráðherra

Morgun­blaðið, sem Eyþór Arnalds á stóran hlut í, gagnrýnir Dag B. Eggertsson harðlega fyrir að hafa vísað Eyþóri af fundi í Höfða. Dagur segir Eyþór hafa ætlað að setjast í sæti sem ætlað var Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra.

Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds Hlaut nýverið kosn­ingu í fyrsta sæti fram­boðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem haldnar verða í lok maí. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í komandi borgar­stjórnar­kosningum, bauðst til að setjast í sæti sem ætlað var forsætis­ráðherra á fundi þingmanna og borgar­fulltrúa í Höfða sem haldinn var á mánudag. Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri greinir frá þessu á Facebook, en þar bregst hann við umfjöllun Morgun­blaðsins um þá sérkenni­legu atburðarás sem átti sér stað í Höfða í viku­byrjun. 

Eyþór Arnalds er kjölfestu­eigandi Morgun­blaðsins; hann á 22,87 prósenta hlut í Þórsmörk ehf. sem á 99 prósent í Árvakri, útgáfu­félagi Morgun­blaðsins.

Í staksteinum Morgun­blaðsins í dag er Dagur gagn­rýndur harðlega fyrir að hafa vísað Eyþóri af fundinum. „Var það gert í þágu samræðu­stjórn­málanna? Var það gert til að auka skilning þingmanna á þörfum Reykja­víkur? Var það gert til að styrkja stöðu Reykja­víkur? Var það gert, eins og borgar­stjóri heldur fram, vegna þess að oddvitinn á ekki enn sæti í borgar­stjórn?“ spyr staksteina­höfundur og svarar svo sjálfum sér: „Nei, ekkert af þessu getur átt við. Dagur veit, líkt og allir aðrir, að oddvitinn leiðir borgar­stjórnar­flokk Sjálfstæðis­flokksins og er á leið í borgar­stjórn. Þátttaka hans í samtali við þingmenn ætti því að vera af hinu góða.“

Dagur segir Morgun­blaðið afbaka atburða­rásina og leggja allt út á versta veg. „Verður blaðið og ritstjórn þess að eiga það við sig og sína lund,“ skrifar hann. Dagur segist hafa boðað fundinn í kjördæma­viku samkvæmt hefð og að höfðu samráði við utan­ríkis­ráðherra og forsætis­ráðherra. Í fundar­boði hafi komið skýrt fram að um hefð­bundinn fund þingmanna Reykja­víkur og borgar­fulltrúa í kjördæma­viku væri að ræða. Því hafi komið honum á óvart að hitta Eyþór Arnalds, verðandi oddvita Sjálfstæðis­flokksins í borgar­stjórn, rétt áður en fundurinn hófst. Máls­atvikum lýsir Dagur með eftir­farandi hætti:

„Ég heilsaði honum í andyri hússins og sagði honum hvernig í málinu lagi, fundurinn væri fyrir borgar­stjórn og þingmenn en fram­bjóðendur hefðu ekki verið boðaðir. Ekkert fór á milli mála í þessum samskiptum. Þess var beðið í nokkrar mínútur að allir fundar­menn skiluðu sér og þegar forsætis­ráðherra var komin í hús bauð ég fundar­gestum að setjast við langborð.

Ég sat fyrir miðju borðsins öðrum megin með Halldór Halldórsson oddvita Sjálfstæðis­flokksins í borgar­stjórn við hlið mér, en Guðlaug Þór utan­ríkis­ráðherra á móti mér. Þá brá svo við Eyþór gengur í salinn og býst til að setjast í auða sætið við hlið Guðlaugs, sem ætlað hafði verið fyrir forsætis­ráðherra. Við það gerði ég athugasemd, ítrekaði hvers eðlis fundurinn væri, hverjum hefði verið til hans boðið og að ég væri viss um að Vigdís Hauks­dóttir hefði líka verið til í að sitja fundinn en hann hefði ekki verið ætlaður fram­bjóðendum. Ef áhugi væri á slíkum fundi þyrfti að boða hann sérstak­lega. Eyþór vék við svo búið af fundinum, forsætis­ráðherra tók sæti sitt en utan­ríkis­ráðherra upplýsti að hann hefði boðið Eyþóri. Voru ekki höfð uppi mikið fleiri orð um þetta atvik þótt sérstakt hafi verið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár