„Ég hef orðið fyrir blæstri úr ólíkum áttum“

Halla Hrund Loga­dóttir vék sér undan því í Pressu að svara spurn­ingum um hvort hún hefði orðið fyrir þrýst­ingi frá ráð­herra eða stjórn­völdum í starfi sínu sem orku­mála­stjóri þar sem áherslur hennar voru gjarnan á skjön við áherslur rík­is­stjórn­ar­innar. End­ur­tekið sagð­ist hún tala fyrir almanna­hags­munum.

„Ég held það skipti ákaf­lega miklu máli að for­seti tali fyrir almanna­hags­munum,“ sagði Halla Hrund Loga­dóttir, for­seta­fram­bjóð­andi og orku­mála­stjóri, í þjóð­mála­þætt­inum Pressu þegar talið barst að orku­málum og nátt­úru­vernd. 

Hún bætti við að for­seti þurfi að tala fyrir lang­tíma­hags­munum þjóð­ar­innar og að útfærsla á umgjörð auð­linda­mála geti skipt sköpum.

Spurð hvort þetta sé henni áhyggju­efni í orku­málum enda hafi það engum dulist að gjá hefur verið á milli mál­flutn­ings hennar og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar umhverfis-, orku- og auð­linda­ráð­herra, þá segir hún: „Ég tala fyrir almanna­hags­munum heilt yfir og í takt við stefnu stjórn­valda…“

Er þá orku­mála­ráð­herra ekki að tala fyrir almanna­hags­munum?

„…og ég mun tala fyrir almanna­hags­munum á breið­ari grunni í emb­ætti for­seta Íslands. Mig langar aðeins að koma inn á þetta mál sem hefur verið rætt hérna áðan sem varðar auð­linda­nýt­ing­una. Auðvitað er það þannig að þegar við erum að tala um svona stórt mál, að það skiptir máli að vanda það vel og ég tek undir það sem var hefur komið hérna fram að auð­vitað er þetta mál bara í upp­hafs­með­ferð þings­ins og mun halda áfram að þró­ast,“ sagði Halla Hrund. 

Hún seg­ist mjög hugsi yfir mál­inu. „Og ég finn að þjóðin hefur áhyggjur af því og ég veit það eftir reynslu mína af auð­linda­nýt­ingu orku­mála vatns- og jarð­efna, bæði á Íslandi en líka í mínum fyrri störfum við Harvard háskóla að þetta eru mál­efni sem skipta gríð­ar­lega miklu máli og þess vegna mun ég fylgj­ast gaum­gæfi­lega með því hvernig því vindur fram. Því eins og málið blasir við mér akkúrat núna að þá hef ég áhyggjur af tíma­lengd­inni. Ég get sagt að í sam­hengi orku­mál­annna þá er verið að ráð­stafa vatns­afls­virkj­unum ótíma­bundið en í sam­hengi sög­unnar hefur það yfir­leitt verið til opin­bera aðila, eins og sveit­ar­fé­laga.“

Þannig það sem þú ert að segja núna er að ríkj­andi stjórn­völd hafi ekki almanna­hags­muni eða breiða almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi?

„Ég held að umræðan sé að fara af stað í þing­inu um þetta mál og ég treysti því að þingið rísi upp og sinni þessu máli vel og ég held það eigi eftir þroskast mikið umræðan hvað þetta varðar,“ segir Halla Hrund. 

Spurð hvort hún hafi orðið fyrir þrýst­ingu af hálfu stjórn­mála­manna vegna áherslna sinna í starfi sem orku­mála­stjóri segir hún: „Ég hef fundið fyrir því, og held það fari ekki fram­hjá neinum, að orku­málin eru gríð­ar­lega eld­fim og þar koma saman ólíkir hags­munir.“

 En það skiptir máli hvort að stjórn­mála­menn eða til dæmis ráð­herra hafi þrýst á þig?

„Ég vil bara segja að það sem skiptir mestu máli er að þetta eru gríð­ar­lega stór mál, þar eru ólíkir hags­munir og mik­ill þrýst­ingur ólíkra aðila, ef við erum að tala um atvinnu­lífið ef við erum að tala um stjórn­mál og annað. Og, það sem skiptir máli hérna er akkúrat í sam­hengi við emb­ætti for­seta Íslands, að for­seti þarf að geta andað ofan í kvið­inn, þarf að geta tekið á móti blástri úr ólíkum áttum og sett nefið í vind­inn,“ segir Halla Hrund.

Hefur þú verið með blástur frá ráð­herr­anum?

„Ég hef orðið fyrir blæstri úr ólíkum áttum og það skiptir máli að geta andað ofan í kvið­inn og fylgt lögum hverju sinni. Og það hef ég lagt áherslu á sem Orku­mála­stjóri, er að fylgja stefnu stjórn­valda og fylgja lögum í land­inu og gleymum ekki emb­ætt­is­menn,“ segir hún en víkur sér ann­ars undan spurn­ing­unni og seg­ist hafa lagt áherslu á að fylgja lögum og reglum í einu og öllu, og sinnt starfi sínu af heil­indum, þrátt fyrir alls konar áskor­anir. 

Fram­bjóð­end­urnir fjórir sem mælst hafa með mest fylgi þeirra sem sækj­ast eftir for­seta­kjörimm­unu mætt­ust í beinni útsend­ingu í Pressu fyrr í dag, stuttu áður en þau fóru að skila inn und­ir­skriftun með­mæl­enda með fram­boði sínu.  Þetta var í fyrsta sinn sem þessi hópur fram­bjóð­enda deilir svið­inu í umræðu­þætti fyrir kosn­ingar; þau Halla Hrund Loga­dóttir, Katrín Jak­obs­dóttir, Baldur Þór­halls­son og Jón Gnarr.

Hér má horfa á Pressu í heild sinni þar sem for­seta­fram­bjóð­end­urnir fjórir mætt­ust. Fyrri helm­ingur þátt­ar­ins er aðgengi­legur öllum en þátt­ur­inn í heild sinni er aðgengi­legur áskrif­endum.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Pétur Þorsteinsson skrifaði
    Svör Höllu Hrundar eru afar góð og sýna að hún kann sitt fag. Pressan pressar verulega á hana, sem er lofsvert, og Halla Hrund segir það sem segja þarf, á "diplómatísku", sem er nákvæmlega rétt málsnið frambjóðanda á þessum tímapunkti. Það þarf stundum að lesa á milli línanna í textum á "diplómatísku".
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár