Bókanir Airbnb tvöfaldast og verða 80 milljónir í ár

Allt stefnir í að bókaðar gistinætur í gegnum vefsíðuna Airbnb verði 80 milljón talsins í ár og tvöfaldist frá árinu 2014, þegar þær voru um 40 milljón talsins. Frá þessu greinir Reuters í dag og hefur upplýsingarnar eftir ónafn­greindum fjárfesti sem þekkir vel til reksturs Airbnb. Í umfjöllun Reuters segir að barátta vefsíðunnar við yfirvöld, sem víða vilja regluvæða umhverfi bókana­vefsíða á borð við Airbnb, hafi enn sem komið er ekki dregið úr alþjóð­legum vexti félagsins.

Airbnb vill ekki staðfesta rekstrar­tölur er varða fjölda bókana en hefur upplýst að um 1.5 milljónir eigna séu skráðar á vefsíðunni í yfir 34 þúsund borgum í 190 löndum. Flestar eignir eru skráðar til leigu í París í Frakk­landi, eða um 60 þúsund eignir. Um helmingur tekna félagsins kemur frá Evrópu saman­borið við 30 prósent í Banda­ríkjunum.

Komu Airbnb hefur verið tekið misjafnlega af borgar­yfirvöldum. Sjaldnast er fyrir hendi regluverk utan um heima­gistingar af þessu tagi, og á meðan margir fagna valkostinum, ekki síst almenningur, þá hafa yfirvöld haft áhyggjur meðal annars af eftirliti starfseminnar og innheimtu skatt­tekna. Í San Francisco, fæðingar­borg fyrir­tækisins, hafa borgar­yfirvöld talið síðuna ýta undir leiguverð og vilja bregðast við með því að takmarka skammtíma­útleigu einstaklinga við nokkra mánuði á ári.

Eins og fyrr greinir hefur andstaða borgar­yfirvalda víða, meðal annars í New York borg, ekki haft áhrif á gríðar­legan vöxt félagsins, sem metið er á 25,5 milljarða dollara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár