Segir lítinn samhljóm á milli fjármálastefnu og stjórnarsáttmála

ASÍ segir að fjármála­stefna ríkis­stjórnar byggi á því að velferðar­kerfið verði notað sem helsta hagstjórnar­tækið á næstu árum. Að mati samtaka getur slík stefna aldrei orðið grund­völlur fyrir stöðug­leika á vinnu­markaði.

Boðað aðhald í fjármála­stefnu ríkis­stjórnarinnar getur aldrei orðið grund­völlur fyrir stöðug­leika á vinnu­markaði eða til að ná markmiðum um velsæld og úrbætur á sviði velferðar­mála. Þetta segir Alþýðu­samband Íslands (ASÍ) í mánaðar­yfirliti samtak­anna, sem birtist í dag.

Samkvæmt yfirlitinu er lítill samhljómur á milli fjármála­stefnunnar og stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar, þar sem sú fyrr­nefnda boðar aukið aðhald til að stöðva vöxt skulda­hlut­fallsins en sú síðarnefnda boðar betri almanna­þjónustu og skatta­lækkanir.

ASÍ segir líklegt að ríkis­stjórnin stefni því að því að auka útgjöld eða lækka skatta ef afkoma verður betri en búist er við vegna betri framvindu í efnahags­málum. Þessar áherslur eru að mati samtak­anna gagnrýni­verðar, sér í lagi ef skattar eru lækkaðir í efnahagslegri uppsveiflu þegar jákvæð afkoma skýrist öðru fremur af tekjum sem séu ekki líklegar til að halda til lengri tíma.

Vilja hærri skatta í stað niðurskurðar

Samkvæmt samtökunum hafa skatta­lækkanir á tíma­bilinu 2013-2019 þrengt verulega að stöðu ríkis­sjóðs og fjár­mögnun samfélagslegra innviða ekki verið tryggð með fullnægjandi hætti.

Í greinar­gerðinni samhliða fjármála­stefnunni kemur þó fram að unnið verði að endur­bótum á skatt­kerfinu þannig að tekju­öflun hins opinbera nægi til þess að standa undir verkefnum þess. ASÍ segir hins vegar að ekki sé ljóst hvað felist í þessum endur­bótum, þar sem stjórnar­sáttmáli ríkis­stjórnarinnar boðar bæði eflingu almanna­þjónustu og skatta­lækkun.

Hins vegar benda samtökin á að stórar áskoranir séu framundan í opinberum fjármálum, þar sem búist er við minni hagvexti til langs tíma í fram­tíðinni, en aukinni útgjalda­þörf.

„Í fjármála­stefnu er ekki að finna skýra stefnu­mörkun um hvernig brugðist verði við þeim stóru áskorunum sem hagkerfið stendur frammi fyrir,“ bætir ASÍ við. „Þvert á móti fæst ekki séð hvernig fjármála­stefnan, með veikan tekju­grunn og litlar fjár­festingar stuðli við framleiðni­vöxt og mæti útgjalda­þörf vegna öldrunar þjóðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár