Alvotech á markað í Bandaríkjunum

Líftækni­lyfja­fyrirtækið Alvotech hyggst ætla að skrá sig á bandarískan hlutabréfa­markað í gegnum samruna við sérhæft yfirtöku­félag. Heildar­virði sameinaðs félags er áætlað á um 295 milljarða króna.

Róbert Wessman, stofnandi Alvotech
Róbert Wessman, stofn­andi Alvotech Mynd: Aðsend mynd

Alvotech Holdings S.A., sem er hluti af Alvogen/Alvotech samstæðunni sem stofnuð var af Róberti Wessman, hyggst skrá félagið í bandarísku NASDAQ kaup­höllina í gegnum samruna við sérhæft yfirtöku­félag. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá félaginu sem var send á fjölmiðla fyrr í dag.

Samkvæmt frétta­tilkynningunni gerðu Alvotech og yfirtöku­félagið, sem nefnist Oaktree Acquisition Corp. II, samning um samruna fyrr í dag. Þessi samningur mun skila Alvotech um 450 milljónum Bandaríkja­dala, eða tæpum 60 milljörðum íslenskra króna, annars vegar í gegnum 250 milljóna dala reiðufjár­aukningu úr sjóðum Oaktree og hins vegar í gegnum 150 milljóna dala hlutafjár­aukningu frá íslenskum og erlendum fjár­festum, sem og núverandi hluthöfum.

Erlendu fjár­festarnir eru Suvretta Capital, Athos, CVC Capital Partners, Temasek, Farallon Capital Management og Sculptor Capital Management. Innlendi fjárfesta­hópurinn er hins vegar leiddur af Arion banka, Lands­bankanum og Arctica Finance.

Heildar­virði sameinaða fyrir­tækisins er áætlað um 2,25 milljarðar Bandaríkja­dala, eða um 295 milljarðar króna. Að því gefnu að enginn af núverandi hluthöfum Oaktree nýti innlausnar­rétt sinn þá munu núverandi hluthafar Alvotech eiga rúmlega 80% í félaginu, á meðan hluthafar Oaktree munu eiga um 11% og nýju fjár­festarnir um 7%.

Bloomberg greindi fyrst frá samrunanum í morgun og vitnaði þá í heimildir innan úr fyrir­tækinu, en þar var greint frá væntri hlutafjár­aukningu og áætluðu heildar­virði félagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár