Það kostar 200 til 260 milljarða að tvöfalda Hringveginn

Það kostar 200 til 260 milljarða króna að tvöfalda Hringveginn um Ísland. Ef lagður yrði svokallaður 2+1 vegur, þar sem tvær akgreinar liggja í aðra áttina en ein í hina, myndi kostnaðurinn vera 130 til 170 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innan­ríkis­ráðherra við fyrir­spurn Björgvins G. Sigurðs­sonar, sitjandi þingmanns Samfylkingarinnar, sem birt hefur verið á vef Alþingis.

Í svarinu er sérstak­lega tekið fram að það sé fyrst og síðast rökstudd ágískun. „Frekari nákvæmni kallar á tímafreka og mjög kostnaðar­sama gerð á frum­drögum verks en þau hefðu lítið hagnýtt gildi eins og sjá má af umfjölluninni hér að framan. Þær tölur sem settar eru fram hér verður að skoða sem lágmarks­tölur, t.d. er ekki horft sérstak­lega til margra einbreiðra brúa á leiðinni sem alfarið þyrfti að endurgera og þá oftast í tvöfaldri breidd".

Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air, sagði í viðtali við Helgar­útgáfuna á Rás 2 í byrjun október að það þyrfti viðhorfs­breytingu hjá stjórn­völdum gagnvart ferða­þjónustu og uppbyggingu innviða til að koma til móts við fjölgun ferða­manna. Þeir verða líklega um 1,3 milljónir á þessu ári, en náðu ekki milljón í fyrra og voru hálf milljón árið 2008. Vöxturinn á skömmum tíma hefur því verið gríðar­legur og allar spár gera ráð fyrir áfram­haldandi örum vexti í nánustu framtíð.

Skúli sagði nauðsynlegt að hraða uppbyggingu Kefla­víkur­flugvallar og að tvöfalda hringveginn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár