Heita sex milljónum í fundarlaun

Eigendur tölvu­bún­aðar sem stolið var í jan­úar í gagna­veri á Suð­ur­nesjum heita sex millj­ónum króna í fund­ar­laun til hvers sem getur veitt áreið­an­legar upp­lýs­ingar um hvar bún­að­inn er að finna.

Eigendur tölvu­bún­aðar sem stolið var í jan­úar í gagna­veri á Suð­ur­nesjum heita sex millj­ónum króna í fund­ar­laun til hvers sem getur veitt áreið­an­legar upp­lýs­ingar um hvar bún­að­inn er að finna.

Í sam­tali við RÚV segir Ólafur Helgi Kjart­ans­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, að þessi aðferð eigi sé fá for­dæmi í rann­sóknum hér á landi. Ákvörð­unin um að heita fund­ar­launum sé tekin að ósk þeirra sem eiga tölv­urnar, en hann telur þau geta skilað árangri í leit­inni að bún­að­inum. Lög­reglan telur víst að bún­að­ur­inn sé ekki far­inn úr landi.

Ólafur segir mikla vinnu hafa verið lagða í málið og að góð mynd hafi sé komin á það þrátt fyrir að tölv­urnar séu enn ófundnar.

Bún­að­ur­inn sem um ræðir er sér­hann­aður til að fram­leiða raf­myntir á borð við Bitcoin og er met­inn á 200 millj­ónir króna. Níu voru hand­teknir vegna máls­ins í upp­hafi, fjórir úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald og einn situr enn í varð­haldi.

Þeir sem búa yfir upp­lýs­ingum um málið eru hvattir til að hafa sam­band við lög­regl­una á Suð­ur­nesjum í síma 832-0253. Lögregla heitir trún­aði um þann sem bendir á bún­að­inn og ábend­ingar þurfa að ber­ast fyrir 12. apríl 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár