Hafþór Eide Hafþórsson, sem var aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur frá desember 2017 til desember 2019, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður hennar á ný. Hafþór aðstoðar ráðherrann í nýju ráðuneyti ferðamála-, viðskipta- og menningarmála og hefur þegar hafið störf.
Aðstoðarmenn Lilju á seinni hluta síðasta kjörtímabils, sem stýrði mennta- og menningarmálaráðuneytinu, voru Hrannar Pétursson og Milla Ósk Magnúsdóttir. Hrannar ákvað að láta staðar numið í aðstoðarmennsku nú þegar ný ríkisstjórn var mynduð og Milla, sem tók á sínum tíma við stöðu Hafþórs, færði sig um set og aðstoðar nú Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Hafþór er viðskiptafræðingur, með B.Sc próf frá Háskólanum í Reykjavík ásamt því að hafa lokið prófi til verðbréfamiðlunar og diplómu í kínversku frá Háskóla Íslands. Hann hefur sinnt ráðgjöf á sviði byggðarþróunar frá því að hann hætti sem aðstoðarmaður Lilju í desember 2019.
Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn og var meðal annars um tíma formaður Sambands ungra framsóknarmanna og verið einn af kosningastjórum flokksins í síðastliðnum tveimur Alþingiskosningum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir