Í þá tíð… Harðstjórinn Marcos flýr land

Ferdin­and Marcos flúði Fil­ipps­eyjar eftir tutt­ugu ár á for­seta­stóli. Valdatíð hans ein­kennd­ist öðru fremur af spill­ingu, kúgun og grip­deildum.

Ferdinand Marcos stýrði Filippseyjum með járnhnefa í tuttugu ár áður en hann var hrakinn úr embætti fyrir réttu 31 ári.
Ferdin­and Marcos stýrði Fil­ipps­eyjum með járn­hnefa í tutt­ugu ár áður en hann var hrak­inn úr emb­ætti fyrir réttu 31 ári.

Á þessum degi fyrir réttu 31 ári síðan, hinn 25. febr­úar 1986, flúði Ferdin­and Marcos, for­seti Fil­ipps­eyja, land. Hann hafði stjórnað land­inu með harðri hendi í tutt­ugu ár, áður en mót­mæli millj­óna almennra borg­ara hrakti hann loks á braut.

Marcosar er enn í dag helst minnst fyrir grimmd­ar­verk sín og gegnd­ar­lausa spill­ingu, en hann var meðal ann­ars, í úttekt Transperancy International árið 2004, tal­inn annar spillt­ast þjóð­höfð­ingi allra tíma, á eftir Suharto ein­ræð­is­herra Indónesíu.

Marcos fædd­ist árið 1917 og nam lög­fræði áður en hann hóf þátt­töku í stjórn­málum, á árunum eftir seinna stríð. Hann sat á þingi, fyrst í full­trúa­deild­inni og síðar í öld­unga­deild­inni, áður en hann var kjör­inn for­seti í árs­lok 1965.

Herlög gegn andófi og skæruliðum

Í fyrstu virt­ist Marcos ætla að ná góðum árangri við stjórn lands­ins þar sem land­bún­aður og iðn­aður tóku stór stökk fram á við, sem og menntun, en þrátt fyrir það var rísandi und­ir­alda óánægju meðal ung­menna og skæru­liða­hreyf­ingar Maóista börð­ust hat­ramm­lega gegn stjórn­ar­hernum.

Því greip Marcos til þess ráðs, haustið 1972, að setja á her­lög til að stemma stigum við óró­anum. Aðgerðir Marcosar ein­kennd­ust öðru framar af vald­beit­ingu þar sem hernum var beitt í þágu stjórn­ar­herr­ans og allt andóf var barið niður af hörku. Talið er að þús­undir Fil­ippsey­inga hafi verið drepnir eða mátt þola pynt­ingar, nauðg­anir eða ann­ars háttar ofbeldi af hálfu stjórn­ar­liða á þessum árum, en her­lögin giltu allt til árs­ins 1981.

Helsti andstæðingurinn ráðinn af dögum

Einn helsti and­stæð­ingur Marcosar á þessum tíma var Benigno Aquino Jr, en Marcos lét fang­elsa hann eftir að her­lögin voru sett. Aquino var dæmdur til dauða, en Marcos breytti dómnum árið 1980 og hleypti honum til Banda­ríkj­anna vegna veik­inda. Þar var Aquino í þjú ár, en eftir að Marcos boð­aði til for­seta­kosn­inga árið 1983 ákvað Aquino að láta slag standa.

Það átti hins vegar ekki fyrir honum að liggja þar sem hann var ráð­inn af dögum um leið og hann steig út úr vél­inni á flug­vell­inum í Manila. Morðið vakti upp mikla óánægju­bylgju, enda þótti sýnt hverjir – eða hver – stóð á bak við ódæðið. Óháð nefnd, sem Marcos skip­aði til að kom­ast til botns í mál­inu, komst að þeirri nið­ur­stöðu að þarna hefði verið að verki yfir­menn í hernum. Þeir voru þó sýkn­aðir fyrir rétti og eng­inn var á end­anum dæmdur fyrir morðið.

Þar sem helsta and­stæð­ingnum hafði þarna verið rutt úr vegi var Marcos nógu sig­ur­viss til að boða til nýrra kosn­inga, árið 1986. Mót­fram­boðið kom hins vegar á óvart, en það var Corazon Aquino, ekkja Benignos.

Fall og flótti

Þegar úrslit kosn­ing­anna lágu fyrir var Marcos yfir­lýstur sig­ur­veg­ari, en eft­ir­lits­að­ilar, bæði inn­an­lands og utan, töldu að fram­kvæmd kosn­ing­anna hafi verið ábóta­vant og tug­þús­undir streymdu út á götur borga og bæja til að mót­mæla. Herinn var klof­inn í afstöðu sinni til fram­bjóð­end­anna, en svo fór á end­anum að Marcos og fjöl­skylda hans höfðu sig á brott frá Fil­ipps­eyjum, að áeggjan Banda­ríkja­stjórnar sem hafði um ára­bil stutt hann með ráðum og dáð. Aquino tók við völdum og sat til árs­ins 1992. Marcos lést árið 1989 í útlegð á Hawaii.

Spilling og gripdeildir á heimsmælikvarða

Marcosar verður senni­lega helst minnst fyrir gegnd­ar­lausan þjófnað og spill­ingu og lífstíl þeirra hjóna, sem náði oft kómískum hæðum á meðan almenn­ingur bjó við fátækt og tak­mörkuð tæki­færi. Imelda, kona ein­ræð­is­herr­ans sem hafði sjálf um ára­bil verið ein af áhrifa­mestu stjórn­mála­mönnum Fil­ipps­eyja, var til dæmis alræmd fyrir dálæti sitt á skóm og átti víst 3.000 pör þegar yfir lauk.

Alls er talið að Marcosarfjölskyldan hafi dregið sér allt að 10 millj­arða Banda­ríkja­dala úr rík­is­kass­anum á meðan þau héldu um valdataumana, og aðeins brot þeirra fjár­muna komust seinna til skila. Á árunum frá 1972, þegar Marcos setti her­lög, og fram til flótt­ans juk­ust erlendar skuldir fil­ippseyska þjóð­ar­bús­ins úr tæpum þremur millj­örðum Banda­ríkja­dala upp í rúma 28 millj­arða.

Óvænt endurreisn Marcosanna

Í flestum til­fellum lýkur frá­sögnum af ein­ræð­is­herrum með því að þeir hafi fallið sneyptir/öreindir af stalli, og svo virt­ist sann­ar­lega ætla að vera um Marcos-hjónin þar sem þau eru nú eins konar hold­gerv­ingar spill­ingar og óráðsíu.

Hins vegar hafa Imelda og börn hennar verið að ryðja sér sífellt meira til rúms í fil­ippseysku sam­fé­lagi og stjórn­málum hin síð­ustu ár og sér ekki enn fyrir end­ann á því í hinu stórfurðu­lega og hættu­lega ástandi sem þar ríkir nú um stundir.

Marcos og Imelda voru ákærð fyrir fjár­mála­mis­ferli á meðan þau voru í útlegð­inni í Banda­ríkj­unum, en, eftir and­lát ein­ræð­is­herr­ans árið 1989 var Imelda sýknuð af öllum ákærum. Hún flutti aftur hein til Fil­ipps­eyja árið 1991 og var sak­fellt fyrir spill­ingu tveimur árum síðar, en 1998 var dómnum snúið við.

Síðan þá hafa Imelda og börn hennar; Ferdin­and yngri (almennt kall­aður Bongbong) og Imee gert sig gild­andi í stjórn­mála­lífi Fil­ipps­eyja. Imelda hefur um ára­bil verið þing­maður í full­trúa­deild­inni, Imee er hér­aðs­stjóri í heima­fylki föður síns og Bongbong var öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður sem tap­aði naum­lega í kosn­ingu til vara­for­seta Fil­ipps­eyja á síð­asta ári.

Falskar fréttir, valkvæðar staðreyndir og velvilji nýs forseta

Merki­legt fyr­ir­bæri er að arf­leifð Marcosar virð­ist vera að breyt­ast í augum almenn­ings í Fil­ipps­eyjum þar sem und­an­farið hefur borið á skipu­lagðri her­ferð þar sem fag­mann­lega unnum mynd­böndum hefur verið dreift þar sem Marcos-fjöl­skyldan er útmáluð sem fórn­ar­lamb Aquino-ætt­ar­innar (Corazon gegndi emb­ætti for­seta frá 1986 til 1992 og Beningo III, sonur hennar stýrði land­inu frá 2010 fram á síð­asta ár). Þá dreifa nafn­lausar blogg­síður og vafa­samar frétta­síður greinum sem fylgja mjög mál­stað Marcos-ætt­ar­innar auk þess sem Facebookfærslum þar sem þeim, eða Rodrigo Duterte for­seta er hall­mælt, hefur verið eytt.

Falskar fréttir og val­kvæður sann­leikur eru greini­lega ekki alfarið bundin við Banda­ríki Donalds Trump og Rússland Pútíns.

Það er ef til vill engin til­viljun að þessi upp­risa Marcosanna sé að eiga sér stað einmitt núna, eftir að Duterte tók við völdum, því að hann hefur talað af aðdáun um Marcos gamla (enda gegndi faðir Dutertes ráð­herra­emb­ætti í stjórn Marcosar) og naut stuðn­ing Imee í kosn­ing­unum.

Hinsta hvíla harðstjórans í hetjufans

Duterte topp­aði sig svo loks í nóv­em­ber á síð­asta ári, þegar hann fékk í gegn bar­áttu­mál sitt að jarð­neskar leifar Ferdin­ands Marcos voru lagðar til hinstu hvílu í Grafreit hetj­anna í höf­uð­borg­inni Manila.

Það þótti mörgum vera gróf móðgun við almenn­ing sem þurfti að líða ofríki og ofbeldi harð­stjór­ans og ekki síst þeirra fjöl­mörgu sem voru drepnir á valda­tíð hans. Með þessu væri verið að gefa til kynna að grimmd­ar­verkin hafi ekki skipt máli.

Duterte lét slíka gagn­rýni þó ekki á sig fá, heldur sagði að ekk­ert í lögum lands­ins bann­aði það að Marcos væri jarð­settur á þessum stað. Hann hvatti heldur til þess að Fil­ippsey­ingar myndu finna fyr­ir­gefn­ingu í hjarta sínu, til að hægt væri að græða sár for­tíð­ar­innar.

Annað markvert sem gerðist 25. febrúar:

1570

Elísabet I Englandsdrottning bannfærð af páfanum Píusi V.

1836

Samuel Colt fær einkaleyfi á marghleypunni (revolver) sem bar nafn hans.

1932

Adolf Hitler fær þýskan ríkisborgararétt. Hann býður sig fram til forseta sama ár, en hafði ekki erindi sem erfiði.

1948

Kommúnistaflokkurinn tekur völdin í Tékkóslóvakíu

1954

Gamal Abdel Nasser útnefndur forsætisráðherra Egyptalands. Hann varð síðar forseti og leiddi landið í átt til nútímalifnaðarhátta og sjálfstæðis frá Bretum.

1956

Níkíta Krúsjeff, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, gagnrýnir forvera sinn, Jósef Stalín fyrir valdníðslu, morð og hreinsanir á valdatíma sínum og fyrir að hafa staðið fyrir skefjalausri persónudýrkun. Ræðan var flutt á lokuðum fundi með háttsettustu mönnum flokksins en efni hennar spurðist úr áður en langt um leið.

1957

Buddy Holly og The Crickets tóku upp That´ll be the day, sem varð þeirra fyrsti smellur.

1991

Varsjárbandalaginu, varnarbandalagi Sovétríkjanna og sjö Austur-Evrópuríkja slitið.

1994

Fjöldamorðið í Abrahamsmoskunni í Hebron á Vesturbakkanum. Öfgamaðurinn Baruch Goldstein myrðir 29 Palestínumenn við bænir og særir 125 áður en hann var yfirbugaður og drepinn.

2000

Fjórir lögreglumenn sýknaðir af ákæru um morð á Amadou Diallo, ungum innflytjanda frá Gíneu. Þeir skutu 41 skoti að Diallo, sem var óvopnaður, en ætlaði að sýna lögreglumönnunum veskið sitt. Bruce Springsteen gerði þessu voðaverki m.a. skil í laginu American Skin (41 Shots).

2009

Tólf láta lífið þegar flugvél Turkish Airlines hrapar við lendingu á Schiphol í Amsterdam.

Afmælisbörn dagsins:

Jean Todt (71), Kurt Rambis (59), Téa Leoni (51),Carrot Top (50), Sean Astin (46).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár