Shell grípur til sparnaðaraðgerða - sker niður um 3.000 milljarða

Olíu­risinn Shell hyggst skera niður í rekstrinum um 15 milljarða punda, jafnvirði um þrjú þúsund milljarða króna, á næstu þremur áru. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til kaup­hallar sem breska ríkis­útvarpið vitnar til í umfjöllun sinni.

Hagnaður fyrir­tækisins á síðustu þremur mánuður ársins í fyrra nam 4,2 milljörðum punda, jafnvirði tæplega 850 milljarða króna, og tvöfaldaðist milli ára. Ástæðuna fyrir hagnaðinum má meðal annars rekja til umfangs­mikillar eignasölu, upp á ríflega þrjú þúsund milljarða króna.

Forstjóri Shell, Ben van Beurden, segir í viðtali við BBC að nauðsynlegt sé að stilla rekstur fyrir­tækisins af miðað við ytra umhverfið, en þó megi ekki bregðast við af of mikilli ákefð vegna verð­þróunar á mörkuðum undan­farna mánuði.

Frá því í júlí í fyrra hefur olíuverð lækkað mikið. En verðið á tunnunni var um 110 Bandaríkja­dalir í júlí, en er nú komið niður fyrir 50 dali. Þessi verðþróun hefur komið illa við rekstur margra fyrir­tækja og ríkis­sjóði sömuleiðis. Þannig hefur rússneska hagkerfið átt í miklum vanda undan­farna mánuði, en um 70 prósent hagkerfisins byggir á viðskiptum sem rekja má til olíu- og gasviðskipta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár