Staðfest að flugvél MH 17 í Úkraínu var skotin niður með flugskeyti

Rann­sóknarnefnd í Hollandi hefur staðfest að flugvél MH 17 var skotin niður með flug­skeyti þegar hún fórst í Úkraínu, í júlí í fyrra. Frá þessu er greint á vef breska ríkis­útvarpsins BBC. Allir um borð, 298 talsins, létust. Ekki liggur fyrir með stað­festri rannsókn úr röðum hverra flug­skeytið kom, en Úkraínu­menn og þjóð­höfðingjar Vestur­landa hafa sagt líklegast að það hafi verið uppreisnar­hópar sem njóta stuðnings og verndar Rússa, sem hafi skotið vélina niður. Þessu hafa Rússar alfarið neitað.

Flugvélin, sem var á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur, fórst inn á svæði sem Úkraínu­menn og Rússar, auk uppreisnar­hópa, höfuð barist í hörðum bardögum. Flestir þeirra sem létust, 196 talsins, voru Hollendingar, en þeir sem létust komu frá tíu löndum. Meðal annars þess vegna var skipuð rann­sóknarnefnd í Hollandi sem fór nákvæmlega yfir allar upplýsingar sem fyrir lágu, og rann­sakaði brot úr vélinni í sjálf­stæðri rannsókn.

Hollensk stjórn­völd hafa nú boðað sakamála­rannsókn á málinu, og verður því fylgt eftir af fullum þunga, af því er segir í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár