Goðsögnin Ronaldo vill snúa aftur í fótboltann

Brasilíska goðsögnin Ronaldo, sem í þrígang var valinn knattspyrnu­maður ársins í heiminum hjá FIFA, þar á meðal í tvígang áður en hann náði tuttugasta og öðru aldursári, hefur hug á því að snúa aftur í atvinnu­manna­fótbolta með Fort Lauderdale Strikers (FLS), í Norður-Ameríku deildinni NASL. Í viðtali við vef FLS, sem vefsíðan 101greatgoals.com vitnar til, segist Ronaldo ætla að æfa meira á þessu ári en hann hefur gert á síðustu árum. „Ég hef verið svo upptekinn við að gera annað undan­farin ár, en ég ætla að æfa meira á þessu ári[...]Ég mun reyna að spila einhverja leiki,“ segir goðsögnin.

Ronaldo er sjálfur eigandi að 10 prósent hlut í félaginu, og hefur stutt myndar­lega við markaðs­starf félagsins að undan­förnu. Hann stendur meðal annars fyrir degi sem tileinkaður er aðdáendum FLS, hinn 17. janúar næst­komandi.

Ronaldo er almennt álitinn einn allra besti framherji sögunnar, en hann er næst marka­hæsti leikmaður í sögu úrslita­keppni HM á eftir Þjóð­verjanum Miroslav Klose, með 15 mörk. Meiðsli settu strik í reikninginn á mögnuðum ferli hans, og þurfti hann meðal annars í þrígang að vera frá í meira en árslangan tíma sökum alvarlegra hnémeiðsla. Á árunum 2000 til 2002 var hann frá keppni í tæplega tvö ár, en snéri aftur fyrir HM 2002 í Japan og Suður-Kóreu og endaði sem marka­hæsti leikmaður keppninnar með átta mörk og heims­meistari með sterku liði Brasilíu.

Hann er fæddur 1976, og var kjörinn leikmaður ársins hjá FIFA árin 1996 og 1997, en hann var þá leikmaður Barcelona og Inter á Ítalíu. Hann var einnig valinn leikmaður ársins hjá FIFA árið 2002. Ronaldo skoraði 62 mörk í 98 lands­leikj­um fyr­ir Bras­il­íu og varð heims­meist­ari með liðinu 1994 og 2002. Fer­il­inn í Evr­ópu hóf hann hjá PSV Eind­ho­ven, á sama tíma og Eiður Smári Guðjohnsen lék með liðinu, og lék síðan með Barcelona, In­ter Mílanó, Real Madrid, AC Mil­an og Cor­int­hi­ans. Hann hætti að leika sem atvinnu­maður árið 2011.

Ronaldo lék sinn fyrsta landsleik í æfinga­leik með Brasilíu gegn Íslendingum árið 1994. Óhætt er að segja að hann hafi reynst íslenska liðinu erfiður.

https://www.youtube.com/watch?v=offjaRabr40

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár