„Nauðsynlegt“ að fá betra mat á umhverfisáhrifum nýrra virkjana

Vara­formaður Viðreisnar segir að sátt þurfi að vera um orku­nýtingu hérlendis til að útflutningur á orku með sæstreng yrði vel heppnaður. Til þess að ná slíkri sátt þyrfti að meta umhverfis­áhrif nýrra virkjana með skipulegum hætti.

Daði Már Kristófersson, hagfrræðiprófessor við HÍ og varaformaður Viðreisnar
Daði Már Krist­ó­fers­son, hag­fr­ræði­pró­fessor við HÍ og vara­for­maður Við­reisnar Mynd: Axel Jón

Ábatinn af útflutningi íslenskrar orku til annarra landa gæti verið verulegur, en til þess að hann sé vel heppnaður þarf sátt að ríkja um nýtingu orkunnar hérlendis og skiptingu ábatans af útflutningnum. Þetta skrifar Daði Már Krist­ófersson, hagfræði­prófessor við Háskóla Íslands og vara­formaður Viðreisnar, í grein sinni í síðasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn.

Stærri markaður og betri nýting með útflutningi

Í grein sinni segir Daði Már að kostirnir við að flytja út raforku væru marg­þættir. Fyrir það fyrsta jykist verðmæti raforku­fram­leiðslunnar hérlendis, þar sem fleiri væru tilbúnir að greiða fyrir hana, en auk þess yrði nýting orkunnar mun betri en hún er þessa stundina.

Hann segir að lokuð raforku­kerfi, líkt og það íslenska, þurfi að framleiða umfram­orku svo að nægilegt framboð verði tryggt fyrir ófyrirsjáanlegum sveiflum í eftir­spurn. Með útflutningi væri þó hægt að selja þessa umfram­orku þegar hennar er ekki þörf innanlands.

Því til stuðnings bendir Daði á bætta nýtingu á raforku í Svíþjóð og Noregi, en bæði löndin reiða sig mikið á raforku sem framleidd er með vatnsafli, líkt og Ísland, og flytja út orkuna sína til annarra landa.

Grundvöllur fyrir aukna vind- og sólarorkuframleiðslu

Til viðbótar við stærri markað og betri nýtingu nefnir Daði einnig að útflutningur á vatnsafli geti búið til grundvöll fyrir aðra umhverfis­væna orku­framleiðslu.

Samkvæmt honum er gjarnan erfitt að reiða sig á ýmsum grænum orku­gjöfum, líkt og vindorku og sólarorku, þar sem orkan er ekki alltaf til staðar og þegar hún er það er framleiðslu­getan ósveigjanleg. Með meiri innflutningi á stöðugri og sveigjanlegri orku, líkt og vatnsafls­orku, væri hins vegar kominn grund­völlur fyrir fram­leiðslu slíkrar orku.

Daði segir innflutning Dana á norskri vatnsafls­orku hafi verið lykil­forsenda fyrir uppbyggingu vindorku þar í landi, en án innflutningsins væru líklega færri vind­myllur í Danmörku.

Sátt um virkjanir og skiptingu ábatans nauðsynleg

Hins vegar bendir Daði á að ábatinn af útflutningi raforku færi eftir því hversu mikið yrði framleitt af henni hérlendis og að aukin fram­leiðsla fæli í sér rask og umhverfis­kostnað. Samkvæmt honum þyrfti að meta þennan umhverfis­kostnað með skipulegum hætti og bera hann saman við tekju­möguleikana sem nýjar virkjana­framkvæmdir fælu í sér. Hann segir núverandi mat á umhverfis­kostnaði virkjana vera „óbeint og því miður of pólitískt.“

Daði segir að sátt þurfi að vera um þá orku­nýtingu sem er æskileg ef flytja ætti raforkuna út. Til þess að ná þeirri sátt þurfi að setja í lög að mat á umhverfis­kostnaði verði borinn saman við væntan hagnað á nýjum virkjunum.

Til viðbótar segir Daði að tryggja þurfi sátt um hvernig ábatanum af útflutningi orkunnar yrði skipt á milli lands­manna. Tryggja þurfi að neytendur, sem beri skarðan hlut frá borði vegna hærra raforku­verðs, fái hagnaðinn í sinn vasa. „Ekki má endurtaka mistökin sem gerð hafa verið í annarri auðlinda­nýtingu á Íslandi þar sem ábatinn fer til fárra,“ bætir hann við.

Hægt er að lesa grein Daða Más í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár