Varð syfjaður þegar hann gekk inn á skrifstofur Skeljungs árið 2019

Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnar­formaður Skeljungs segir frá því í ávarpi sínu í ársskýrslu Skeljungs að honum hafi liðið eins og hann væri að mæta á fund hjá „ríkis­stofnun í gamla daga“ þegar hann kom inn í Skeljung 2019. Nú séu hins vegar breyttir tímar.

Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Skeljungs.
Jón Ásgeir Jóhann­es­son stjórn­ar­for­maður Skelj­ungs. Mynd: Skjáskot/Kveikur

Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnar­formaður Skeljungs segir, í ávarpi í nýút­kominni ársskýslu fyrir­tækisins, að þrátt fyrir að ekki sé langt síðan innlendri starfsemi félagsins hafi verið skipt upp í þrjú dóttur­félög megi strax finna „kraftinn sem er að leysast úr læðingi vegna hennar“.

„Ég hef oft sagt við samstarfs­menn mína í Skeljungi að ég hafi orðið syfjaður við að koma á skrif­stofu félagsins árið 2019. Andinn var líkur því að mæta á fund í ríkis­stofnun í gamla daga. Nú er andinn annar. Leik­gleðin er alls­ráðandi í hópi frábærra starfs­manna sem ætla sér að skora með sínu liði á nýju ári,“ skrifar Jón Ásgeir einnig, í ávarpi sínu.

Þar fjallar hann einnig um væntanlega nafna­breytingu Skeljungs, en nafni félagsins verður að öllum líkindum breytt í SKEL fjár­festinga­félag á komandi aðalfundi félagsins. „Með þessu undir­strikum við þær breytingar sem orðið hafa á rekstri félagsins,“ segir Jón Ásgeir í pistli sínum.

Nær allur hagnaðurinn vegna sölu á P/F Magn

Skeljungur hagnaðist um 6,9 milljarða króna á síðasta ári. Sá hagnaður er nær allur tilkominn vegna sölu á færeyska dóttur­félaginu P/F Magn á árinu 2021, en bókfærð áhrif þeirrar sölu á tekjur Skeljungs í fyrra voru 6,7 milljarðar króna. Hluthafar ætla að greiða sér út 350 milljónir króna í arð vegna frammistöðu síðasta árs.

Í fjárfesta­kynningu sem birt var samhliða ársuppgjöri félagsins í febrúar kom fram að Skeljungur verði héðan í frá fjár­festinga­félag og beri nafnið SKEL fjár­festinga­félag. Þar með lýkur sögu olíu­félagsins Skeljungs á Íslandi, en hún hófst árið 1928.

Strengur, eignarhalds­félag sem stjórnar­formaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson fer fyrir, á 50,1 prósent hlut í félaginu og hefur því tögl og hagldir innan þess. SKEL byrjar tilveru sínu með 12 milljarða króna í handbært fé, um 50 prósent eiginfjár­hlutfall og einungis tvo milljarða króna í vaxta­berandi skuldum. Áhersla verður lögð „á þróun á nýjum tækifærum með félögum í eigna­safni með langtíma verðmæta­sköpun að leiðar­ljósi.“

Stærstu eignir fjár­festinga­félagsins eru 100 prósent hlutur í Orkunni, Skeljungi IS og Gallon, 48,5 prósent hlutur í Sp/f Orku­félagi í Færeyjum (sem keypti P/F Magn), 20 prósent hlutur í Kaldalóni og 50 prósent hlutur í félaginu Fasteigna­þróun.

Orkan, stærsta eign félagsins, rekur 70 þjónustu­stöðvar með eldsneyti og átta verslanir, þrjár matvöru­verslanir undir hatti Extra og þrjár þæginda­verslanir undir hatti 10/11. Þá á Orkan Löður sem rekur 15 þvotta­stöðvar, Lyfjaval og Lyfsalann sem reka sex apótek, Brauð & Co, Gló, Sbarro og WEDO (Heimkaup, Hópkaup, Bland).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár