Dolce og Gabbana sýknaðir í skattamáli

Ítölsku tísku­kóngarnir Domenico Dolce og Stefano Gabbana hafa verið sýknaðir í máli ítalska ríkisins gegn þeim vegna ásakana um skattsvik. Í apríl voru þeir dæmdir í skilorðs­bundið 20 mánaða fangelsi í undir­rétti vegna málsins. Hæstiréttur Ítalíu hefur nú snúið þeirri niður­stöðu og sýkna þá félaga. Þeir eru að mörgum taldir vera áhrifamestu fata­hönnuðir Ítalíu síðustu 20 árin og hafa auðgast verulega á verslunar­rekstri og fata­hönnun.

Þeir voru sakaðir um að hafa ekki staðið skil á 343,3 milljónum evra, um 53 milljörðum króna. Féð var lagt inn í félag í Lúxemborg, Gado að nafni, og vildu ítölsk skatta­yfirvöld meina að með þessu væru Dolce og Gabbana að svíkjast undan því að greiða skatta af þessari fjárhæð á Ítalíu.

Þeir mótmæltu dóms­niður­stöðunni í apríl með táknrænum hætti, með því loka verslunum sínum í Mílanó borg. Líklega munu þær standa galopnar núna, í ljósi þess að þeir hafa verið hreinsaðir af ásökunum yfirvalda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár