Hart tekist á um aukin útgjöld vegna jólagjafa í Reykjanesbæ

Þegar atvinnu­leysi í bæj­ar­fé­lagi stendur í rúmum 20 pró­sentum, er þá rétt­læt­an­legt að hækka útgjöld vegna jóla­gjafar bæj­ar­starfs­manna? Eða er það takt­laust? Tekist var á um þessar spurn­ingar á hita­fundi bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar á þriðju­dag­inn.

Frá bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ á þriðjudaginn.
Frá bæj­ar­stjórn­ar­fundi í Reykja­nesbæ á þriðju­dag­inn. Mynd: Skjáskot

Tekist var harka­lega á um jóla­gjafir til starfs­manna Reykja­nes­bæjar á bæj­ar­stjórn­ar­fundi á þriðju­dag. Þrír bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, sem sitja í minni­hluta í sveit­ar­fé­lag­inu, lögðu fram til­lögu þess efnis að falla ætti frá því að auka kostnað bæj­ar­ins við jóla­gjafir um rúmar tvær millj­ónir á milli ára.

Jólagjöf bæj­ar­ins í ár, rétt eins og und­an­farin ár, verður í formi árskorts í sund og gjafa­bréfs sem hægt er að nýta hjá fyr­ir­tækjum og þjón­ustu­að­ilum sem eru hluti af verk­efn­inu Betri bær í Reykja­nesbæ.

Andvirði hvers og eins gjafa­bréfs fer úr 10 þús­und krónum og upp í 12 þús­und krónur, en til­laga bæj­ar­stjóra um þetta var sam­þykkt á bæj­ar­ráðs­fundi í síð­ustu viku.

Á fund­inum á þriðju­dag komu full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks fram með bókun þar sem alfarið var lagst gegn þess­ari hækkun, en full­trúar flokks­ins höfðu setið hjá við afgreiðslu máls­ins í bæj­ar­ráði.

„Í ljósi þess að 1 af hverjum rúm­lega 4 ein­stak­lingum á atvinnu­mark­aði í sveit­ar­fé­lag­inu eru án atvinnu og fjár­hags­legra erf­ið­leika í heild hjá sveit­ar­fé­lag­inu, teljum við þessa hækkun takt­lausa,“ sagði í bókun sjálf­stæð­is­manna, sem lögðu til að upp­hæðin færi í stað­inn til þeirra í sveit­ar­fé­lag­inu sem ættu í erf­ið­leikum með að ná endum sama og vel­ferð­ar­svið bæj­ar­ins myndi ann­ast þá úthlutun.

„Sorglegt að verða vitni að lýðskrumi sem þessu“

Meiri­hluti bæj­ar­stjórnar, sem skip­aður er bæj­ar­full­trúum Sam­fylk­ingar, Fram­sóknar og Beinnar leiðar, hafði ekki heyrt þessa til­lögu Sjálf­stæð­is­flokks þegar hún var borin fram á fund­inum og óskaði eftir því að gert yrði fund­ar­hlé til þess að meiri­hlut­inn gæti ráðið ráðum sínum. Meiri­hlut­inn kom síðan fram með bókun þar sem til­lög­unni var hafnað og sjálf­stæð­is­menn sak­aðir um skammar­legt lýð­skrum.

„Starfs­fólk bæj­ar­ins hefur unnið þrek­virki við erf­iðar aðstæður og alls ekki boð­legt að tengja jóla­gjafir til starfs­manna við stöðu vel­ferð­ar­mála. Lögð hefur verið til veru­leg hækkun til mála­flokks­ins og væri frek­ari stuðn­ingur við vel­ferð­ar­mál sjálf­stæð ákvörðun. Það er sorg­legt að verða vitni að lýð­skrumi sem þessu og bæj­ar­full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks til hábor­innar skammar,“ sagði í bókun meiri­hlut­ans.

Nýjum botni náð

Í hönd fóru snarpar umræður um til­lögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Jóhann Friðrik Frið­riks­son bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks sagð­ist hafa orðið vitni að ýmsu þrátt fyrir að stjórn­mála­fer­ill sinn væri ekki langur, en það að tengja jóla­gjafir starfs­fólks við stöðu vel­ferð­ar­mála í sveit­ar­fé­lag­inu næði nýjum botni, að hans mati. Hann sagði að hækk­unin væri „örlít­ill þakk­læt­is­vottur“ til starfs­manna sveit­ar­fé­lags­ins, sem hefðu lagt hart að sér í COVID-far­aldr­inum.

Anna S. Jóhann­es­dóttir bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks sagð­ist lýsti yfir óánægju með að full­trúar flokks­ins væru skamm­aðir eins og litlir leik­skólakrakkar fyrir til­lög­una og velti því upp hvort hún ætti kannski bara að hætta í bæj­ar­stjórn, fyrst botn­inum væri náð.

Baldur Guð­munds­son bæj­ar­full­trúi flokks­ins sagði leitt að hjólað væri í mann­inn í bókun meiri­hlut­ans, sem væri ein­fald­lega að gagn­rýna ákvörðun meiri­hlut­ans, en ekki þau sem per­sónur eða bæj­ar­full­trúa. Hann sagði að staðan væri ein­fald­lega sú að í Reykja­nesbæ væri fjöldi fólks án atvinnu og það væru þau sem hefðu það verst, en ekki opin­ber starfs­menn, starfs­fólk sveit­ar­fé­lags­ins sem hefði haldið sinni vinnu.

„Þá eigiði bara að hætta í bæjarstjórn“

Umræð­urnar á þessum fjar­fundi bæj­ar­stjórnar voru hvassar á köflum. „Ef þið þolið ekki harða gagn­rýni í umræðum þá lítur það út eins og þið séuð ein­hverjir písl­ar­vottar. Þá eig­iði bara að hætta í bæj­ar­stjórn. Menn verða að standa á skoð­unum sínum og þora að tala um það,“ sagði Friðjón Ein­ars­son bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður bæj­ar­ráðs í kjöl­farið á því að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks gagn­rýndu bók­unar meiri­hlut­ans.

Orðlaus yfir tali um lýðskrum

„Ég er eig­in­lega bara gjör­sam­lega orð­laus yfir þessum orðum meiri­hlut­ans um lýð­skrum og um að botn­inum sé alveg náð,“ sagði Margrét Þór­ar­ins­dóttir bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, sem tók undir bókun sjálf­stæð­is­manna um jóla­gjöf­ina og sagði að með henni væri verið að koma til móts við fjölda fólks sem reiðir sig á fjár­hags­að­stoð bæj­ar­ins.

„Þessi til­laga er mikið rétt­læt­is­mál fyrir það fólk,“ sagði í bókun Mar­grétar.

Fimm prósent eða 20 prósent hækkun?

Sjálf­stæð­is­menn sögðu í sínum bók­unum að um 20 pró­sent hækkun væri að ræða frá fyrra ári, en meiri­hlut­inn í sínum bók­unum að með þess­ari hækkun væri heild­ar­virði jóla­gjaf­ar­innar að aukast um fimm pró­sent.

Munurinn á þessu tvennu er sá að meiri­hlut­inn tekur virði árskorts í Sund­mið­stöð­ina Sunnu­braut inn í reikn­ings­dæmið, en minni­hlut­inn horfir bara á beinan útlagðan kostnað sveit­ar­fé­lags­ins við kaup á gjafa­bréfum, sem er sem áður segir að hækka úr 10 þús­und krónum upp í 12 þús­und krónur fyrir hvern af rúm­lega 1.000 starfs­mönnum bæj­ar­ins.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Kjartani Má Kjart­ans­syni bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæjar kostar árskortið 28.700 og heild­ar­verð­mæti jóla­gjaf­ar­innar er því um 40 þús­und krónur fyrir starfs­mann­inn, þó að Sund­mið­stöðin við Sunnu­braut rukki bæj­ar­sjóð ein­ungis fyrir raun­fjölda heim­sókna. Með þeirri rukkun fær­ist í reynd fé úr einum vasa í annan í rekstri sveit­ar­fé­lags­ins.

Árið 2019 voru sund­ferðir starfs­manna bæj­ar­ins út á árskortin alls 9.170 tals­ins. Þann 1. nóv­em­ber voru heim­sóknir starfs­manna, sem alls hafa virkjað 486 árskort á árinu af þeim tæp­lega 1.100 sem var útdeilt síð­ustu jól, orðnar 6.471 tals­ins.

„Ef við gefum okkur að starfs­maður noti sund­kortið til fulls allt árið um kring og gjafa­kortið hjá Betri bæ er verð­mæti jóla­gjaf­ar­innar um kr. 40.000.- fyrir starfs­mann­inn en raun­kostn­aður lægri fyrir Reykja­nesbæ vegna þess að hver við­bótar heim­sókn í Sund­mið­stöð­ina vegur ekki þungt í kostn­aði,“ skrifar Kjartan til Kjarnans.

Sjálf­stæð­is­menn telja í þessu ljósi rétt að horfa bara á hækk­un­ina á gjafa­bréf­inu og sagði bæj­ar­full­trú­inn Baldur að meiri­hlut­inn væri að reyna að merja það inn hjá fólki að um fimm pró­sent hækkun væri að ræða, þegar kostn­að­ur­inn væri að aukast um 20 pró­sent.

„Þetta minnti mig dálítið á Trump, þegar hann sagði „Hillary is a crook“, ef þú segir það nógu oft þá fer fólk að trúa því. Við erum að tala um útlagðan kostnað, þannig sáum við þetta,“ sagði Baldur á fund­inum.

Vont ef starfsfólk upplifi að verið sé að skerða velferðarútgjöld vegna jólagjafa

Guðný Birna Guð­munds­dóttir bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar gerði athuga­semdir við að þessum tveimur málum væri stillt upp hlið við hlið sem svo að pen­ingar sem færu í jóla­gjafir til starfs­manna væru pen­ingar sem væru þá ekki að skila sér inn á vel­ferð­ar­sviðið.

Hún sagði að þegar hefði verið ákveðið að hækka fram­lög til mála­flokks­ins um 18 pró­sent og að ekki væri loku fyrir það skotið að fram­lög til vel­ferð­ar­mála kæmu til með hækka enn frekar í þeirri vinnu við fjár­hags­á­ætlun næsta árs sem nú stendur yfir á vett­vangi bæj­ar­stjórnar.

Hún sagð­ist hafa áhyggjur af því að starfs­menn Reykja­nes­bæjar sem heyrðu þessa umræðu bæj­ar­stjórnar myndu sjá málið sem þannig að jóla­gjöfin þeirra væri á kostnað vel­ferð­ar­mála­mála. „Ég fæ í brjóstið ef þau upp­lifa það þannig,“ sagði Guðný Birna.

„Mér finnst þetta ekki óeðli­leg hækkun og mér finnst eðli­legt, í takt við álags­mæl­ingar og annað sem við erum að sjá hjá starfs­fólk­inu okkar, að við bætum í jóla­gjaf­irnar. [...] Þetta er ekki mikið, en þetta er þakk­læt­is­vottur.

Við erum að sinna vel­ferð­ar­mál­unum vel og ég skil það alveg að þetta er ákveðin heild­ar­upp­hæð sem er stór, en starfs­fólkið okkar, mér finnst þau eiga það skilið og ég stend fylli­lega á bak við það að standa við þessa upp­hæð,“ sagði Guðný Birna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár