Sendiherra ESB á Íslandi fer úr landi

„Því miður þarf ég að fara í flýti, áður en öll flug hætta,“ sagði Michael Mann, sendi­herra Evrópu­sambandsins á Íslandi, í morgun. Lokun allra flugleiða til Íslands er líklega framundan, segir utan­ríkis­ráðherra.

Michael Mann
Michael Mann Þraut­reyndur emb­ætt­is­maður hjá Evr­ópu­sam­band­inu var skip­aður for­maður sendi­nefndar Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi fyrir tveimur og hálfu ári. Mynd: DIETER NAGL / AFP

„Og nú kveð ég Ísland, heimili mitt til tveggja og hálfs árs. Því miður þarf ég að fara í flýti, áður en öll flug hætta,“ segir Michael Mann, sendi­herra Evrópu­sambandsins gagnvart Íslandi, sem er nú farinn úr landi vegna COVID-19 faraldursins og viðbragða við honum.

Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra greindi í gær frá yfir­vofandi lokun allra flugleiða til Íslands. „Um mánaða­mótin gætu allar flug­leiðir hafa lokast,“ sagði hann í yfir­lýsingu á Facebook.

Sendi­herra ESB hefur brugðist við þeim möguleika með því að fara úr landi. Hann þakkar Íslandi fyrir, en hér eignaðist hann meðal annars barn. „Takk fyrir Ísland. Fallegt land og yndislegt fólk. Dóttir mín fæddist hér. Ég hef eignast góða vini hér og verið stoltur af því að vera fulltrúi ESB hér. Megi náið og hlýtt samband okkar við Ísland halda áfram,“ segir hann.

Mann segist að lokum munu snúa aftur til Íslands í fram­tíðinni, starfs síns vegna. Mann hefur tekið við nýrri stöðu í Brussel, sem snýr að heimskauta­svæðunum. Hann kveðst hlakka til að sameinast fjöl­skyldu sinni. 

Meðal þeirra sem kveðja Mann á Facebook eru Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Stephensen, framkvæmda­stjóri Félags atvinnu­rekenda, Óttarr Proppé, fyrr­verandi heilbrigðis­ráðherra, Helga Vala Helga­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Árni Páll Árnason, fyrr­verandi formaður Samfylkingarinnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár