Paul Krugman: Obama hefur náð sögulegum árangri

Paul Krugman, Nóbels­verðlauna­hafi í hagfræði, segir að Barack Obama Bandaríkja­forseti, og hans fólk, hafi náð sögulegum árangri við stjórn landsins frá því hann tók við stjórnar­taumunum, í byrjun árs 2009, eftir kosningarnar 4. nóvember 2008. Í ítarlegri grein sem Krugman skrifaði í Rolling Stone í síðustu viku, segir hann að Obama sitji nú undir ósann­gjarnri gagnrýni frá vinstri, hægri og úr miðjunni á hinum pólitíska skala í Banda­ríkjunum.

„Þrátt fyrir að allt er forsetatíð hans ein sú árangurs­mesta í sögu Banda­ríkjanna,“ segir Krugman. Hann vitnar sérstak­lega til endur­skipulagningar á heilbrigðis­kerfinu, sem hann segir að sé að heppnast miklu betur en „allir þorðu að vona“. Þá hafi stjórn hans á efnahags­málum gengið vel, þrátt fyrir að hún hafi ekki verið gallalaus. Gríðarleg vandamál sem blöstu við þegar hann tók við séu nú að baki. „Þá bendir allt til þess að áherslur hans í umhverfismál verði til þess að styrkja stöðu Obama verulega þegar fram í sækir,“ segir Krugman.

Staða efnahags­mála í Banda­ríkjunum hefur verið að vænkast nokkuð að undan­förnu, sé horft til atvinnu­leysis- og hagvaxartalna sérstak­lega. Atvinnu­leysi hefur ekki verið minna frá því að Obama tók við, en það mældist 6,1 prósent í ágúst. Það fór hæst yfir 10 prósent á árunum 2009 og 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár