Samskipti flugmanna komin inn á borð rannsakenda í Rússlandi

Rússnesk stjórn­völd reyna nú allt til þess að flýta rannsókn á flug­slysinu í Egypta­landi um liðna helgi þar sem allir um borð létust.

Upptökur af samskiptum flugmanna í flug­vélinni sem fórst í Egypta­landi um liðna helgi, tuttugu og tveimur mínútum eftir flugtak, eru nú komnar inn á borð rússneskra rann­sakenda sem leitast við að upplýsa um hvers vegna vélin fórst. Hinn svokallaði svarti kassi, sem geymir endurrit af hljóð­upptökum, fannst fljótt á staðnum þar sem vélin brotlenti. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, segir að allt verði gert til þess að upplýsa málið og bregðast við þegar fyrir liggur hvað gekk á.

Mögu­leikanum á því að hryðjuverka­samtökin Íslamska ríkið, sem Rússar berjast við í Sýrlandi við hlið stjórnar­hersins í landinu, hafi grandað vélinni hefur ekki verið ýtt útaf borðinu. Hann þykir ólíklegur, sökum þess í hvaða hæð vélin var þegar hún missti hæð, en ekkert er þó útilokað.

Enginn af þeim 224 sem var um borð í flugvél rússneska flug­félagsins Kogalymavia, í flugi númer KGL9268, komst lífs af þegar flugvélin fórst í Egypta­landi, en hún var á leið frá ferðamanna­staðnum Sharm el-Sheikh við Rauða­hafið til St. Péturs­borgar í Rússlandi. Talsmenn Kogalymavia segja að allt bendi til þess að vélin hafi ekki farist vegna tækni­bilunar, heldur frekar skyndi­legs höggs eða annarra ytri áhrifa. Yfirvöld í Rússlandi hafa ekkert viljað segja um málið, en segja of snemmt að segja til um hvað gerðist, þar sem málið sé í rannsókn, aðsögn BBC.

Eftir að vélin fórst lýstu hryðjuverka­samtök, sem starfaða hafa undir verndar­væng Íslamska ríkisins, yfir ábyrgð á því að vélin fórst. Sú yfir­lýsing hefur hins vegar ekki verið metin trúverðug, hvorki af yfirvöld í Egypta­landi né Rússlandi. Mikill titringur er sagður í Rússlandi vegna málsins, og eru forsvars­menn Kogalymavia flug­félagsins sagðir undir mikilli pressu vegna málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár