Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO

Náttúra Vatna­jökuls­þjóðgarðs þykir einstök fyrir mann­kynnið.

Vatna­jökuls­þjóðgarður er kominn á heims­minjaskrá Menningar­mála­stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi heimsminja­nefndar UNESCO í Bakú í Aserbaídsjan í dag á grund­velli þess að þjóð­garðurinn hafi að geyma einstakar náttúru­minjar, að því er segir í yfir­lýsingu frá stjórn­völdum. Þar með er staðfest að náttúra þjóð­garðsins og frið­landsins í Lóns­öræfum teljist hafa einstakt gildi fyrir mannkynið.

Svæðið er einstakt á heimsvísu vegna sköpunar­krafta nátt­úrunnar, samspils elds og íss og þeirrar jarð­fræðilegu fjöl­breytni sem af því leiðir og er sýnileg á yfirborði þjóð­garðsins. Land­svæðið sem um ræðir er afar stórt og um 12 prósent Íslands eru þannig komin á heims­minjaskrá UNESCO sem einstakar náttúru­minjar.

„Þetta er dýrmætt skref fyrir okkur Íslendinga sem án efa verður lyftistöng fyrir svæðið og orðspor þess. Við berum ábyrgð á þessu stór­brotna landi, ekki aðeins fyrir okkur sjálf – heldur heiminn og fram­tíðina. Ég fagna þessum mikilvæga áfanga og þakka þeim fjölmörgu sem unnið hafa ötullega að þessu markmiði undan­farin ár,“ segir Lilja Alfreðs­dóttir í tilkynningu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, fagnar þessu einnig og segir náttúruna stór­brotna. „Náttúra svæðisins sem nú fer inn á heims­minjaskrána er stór­brotin – með ævintýra­legum hraun­myndunum, svörtum söndum, fágætum gróðurvinjum, víðernum sem eiga sér fáa líka, minjum um stórkostleg hamfara­hlaup og jöklum sem geyma ótrúlega sögu og endur­spegla um leið loftslags­vána. Afar óvenjulegt er að svo stór hluti lands sé á heims­minjaskrá UNESCO. Þetta er sannarlega gleði­dagur.“

Tillaga ríkis­stjórnarinnar um að Vatna­jökuls­þjóðgarði yrði bætt á heims­minjaskrána var afhent skrif­stofu heimsminja­samningsins í París í lok janúar 2018. Frá þeim tíma hefur tillagan verið til gaum­gæfilegrar skoðunar og úttektar hjá Alþjóð­legu náttúru­verndar­samtökunum IUCN sem eru heimsminja­nefndinni til aðstoðar við að meta heims­minjagildi, uppruna­leika, heilleika og verndar­stöðu staða sem tilnefndir eru á skrána vegna náttúru­fars.

Auk þess að vera viðurkenning á einstakri náttúru Vatna­jökuls­þjóðgarðs á heimsvísu er ákvörðun heimsminja­nefndarinnar viðurkenning á þeirri ákvörðun íslenskra stjórn­valda að stofna þennan víðfeðma þjóðgarð og mikil­vægur stuðningur við verndun og stjórnun svæðisins.

Heimsminja­samningur Menningar­mála­stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um verndun menningar- og náttúru­arfleifðar heimsins grundvallast á þeirri forsendu að ákveðnir staðir á jörðinni hafi sérstakt alþjóðlegt gildi og eigi sem slíkir að tilheyra sam­eigin­legri arfleifð mann­kynsins. Með samningnum viðurkenndu ríki nauðsyn verndunar þar sem það er talið skaða arfleifð allra þjóða heims ef einhver hluti hinnar menningar­legu eða náttúru­legu arfleifðar spillist eða hverfur. Ísland á þegar tvo staði á heims­minja­skránni, Þingvelli (2004) og Surtsey (2008). 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár