Fyrrverandi ráðherra var ráðin í starf sérfræðings

Siv Frið­leifs­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, var ráðin í starf sér­fræð­ings á skrif­stofu félags­þjón­ustu í félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­inu í vor. Ráðn­ingin tók gildi 1. apríl síð­ast­lið­inn og starfið var aug­lýst. Alls sóttu 36 um það. Samkvæmt svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið var það skrif­stofu­stjóri félags­þjón­ustu sem tók ákvörðun um ráðn­ing­una í sam­ráði við ráðu­neyt­is­stjóra.

Siv var fengin til að starfa sem ráð­gjafi fyrir félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neytið á árinu 2014. Um var að ræða aðstoð vegna nor­ræns sam­starfs, for­mennsku í nor­rænu ráð­herra­nefnd­inni og vinnu í vel­ferð­ar­vakt­inni sem stofnuð var að frum­kvæði stjórn­valda snemma árs 2009 til að fylgj­ast með afleið­ingum efna­hags­hruns­ins á heim­ilin í land­inu. Alls fékk Siv greiddar 19.670.014 krónur frá upp­hafi árs 2014 og fram í des­em­ber 2015 fyrir ráð­gjafa­störf sín. Félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra er Eygló Harð­ar­dóttir.

Gerð krafa um víðtæka þekkingu á norrænu samstarfi

Starf sér­fræð­ings á skrif­stofu félags­þjón­ustu var aug­lýst í febr­úar síð­ast­liðnum. Í aug­lýs­ing­unni var kraf­ist háskóla­prófs eða sam­bæri­legrar mennt­unar á sviði félags­mála. Þá sagði einnig í aug­lýs­ing­unni að mik­il­vægt væri „að við­kom­andi sér­fræð­ingur hafi víð­tæka þekk­ingu og reynslu af opin­berri stjórn­sýslu og sam­starfi þvert á ráðu­neyti. Enn fremur er æski­legt að hann hafi sér­þekk­ingu á þeim mála­flokkum sem heyra undir skrif­stofu félags­þjón­ustu. Þá er einnig gerð krafa um víð­tæka þekk­ingu og reynslu af alþjóð­legum sam­skiptum, ekki síst nor­rænu sam­starfi innan stjórn­sýsl­unnar.“

Siv er með BS-próf í sjúkra­þjálfun. Hún sat á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn frá 1995 til 2013 og var tví­vegis ráð­herra. Siv var umhverf­is­ráð­herra og sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa 1999 til 2004 og heil­brigðis- og trygg­inga­mála­ráð­herra 2006 til 2007.

Aug­lýs­ingin um starf sér­fræð­ings á skrif­stofu félags­þjón­ustu vakti athygli tveggja háskóla­mennt­aðra kvenna sökum þess að í henni væri starfs­reynsla gerð að veiga­meiri skil­yrði en menntun. Þær skrif­uðu grein sem birt­ist á Vísi.is um málið í febr­úar þar sem þær fjöll­uðu um þau hæf­is­skil­yrði sem sett voru í aug­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár