Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag.


  1. NASA hefur staðfest að vatn í fljótandi formi fyrir­finnst á Mars.

  2. Fjórir breskir vígamenn sem berjast nú með Íslamska ríkinu hafa verið settir á lista Sameinuðu þjóðanna yfir þá sem beittir skulu viðskipta­þvingunum. Þetta er í fyrsta sinn í tíu ár sem Bretar bæta fólki á listann.

  3. Forseti Kína, Xi Jinping, mun fara í opinbera heimsókn til Bretlands í næsta mánuði. Þetta er í fyrsta sinn í tíu ár sem forseti Kína fer í opinbera heimsókn til Bretlands.

  4. Jamaíka hefur kallað eftir því að Bretland greiði milljarða punda í bætur fyrir þrælahald fyrri tíma, en David Cameron forsætis­ráðherra er á leið í sína fyrstu opinberu heimsókn.

  5. 50 ríki hafa lofað 30 þúsund manna liði í friðar­gæslulið Sameinuðu þjóðanna. Kína hefur lofað að senda átta þúsund manns.

  6. Vladimír Pútín hefur kallað eftir því að ráðist verði í raun­verulega breitt samstarf og bandalag gegn hryðju­verkum, rétt eins og gert var gegn Hilter. Þetta kom fram í ræðu hans hjá Sameinuðu þjóðunum.

  7. Rússar íhuga nú einnig að taka þátt í loft­árásum gegn Íslamska ríkinu. Pútín segir þó að það muni aðeins gerast ef Sameinuðu þjóðirnar samþykkja þær.

  8. Pakistanar hafa hengt mann sem var fimmtán ára gamall þegar brotið sem hann var dæmdur fyrir átti sér stað, en hann sagðist alltaf vera saklaus.

  9. Erik Roner, jaðar­íþrótta­stjarna hjá MTV, er látinn eftir að hafa lent á tréi í fallhlífar­stökki.

  10. Dóttir leikarans Paul Walker hefur höfðað mál gegn Porsche vegna dauða föður síns, sem lést í bílslysi árið 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár