Magnús Júlíusson hefur verið ráðinn annar aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þegar hafði verið gengið frá því að Eydís Arna Líndal yrði hinn aðstoðarmaður ráðherrans, en hún gegndi þeirri stöðu einnig þegar Áslaug Arna var dómsmálaráðherra. Hinn aðstoðarmaður Áslaugar Örnu í dómsmálaráðuneytinu var Hreinn Loftsson lögmaður, en hann ákvað um síðustu mánaðamót að halda kyrru fyrir og aðstoða nýjan dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson. Hreinn tilkynnti svo í gær að honum hefði snúist hugur og væri hættur sem aðstoðarmaður Jóns.
Magnús hefur undanfarið gegnt stöðu forstöðumanns orkusviðs hjá N1 ehf.. Áður stofnaði hann fyrirtæki Íslenska orkumiðlun ehf. ásamt Bjarna Ármannssyni fjárfesti en þeir seldu það til Festis, eiganda N1, snemma árs 2020, en áður stofnaði hann og rak Íslenska orkumiðlun ehf. sem var seld til Festi hf. snemma árs 2020 á 850 milljónir króna. Magnús heur starfað sem stundakennari við viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík og átti sæti í orkustefnunefnd sem mótaði langtímaorkustefnu fyrir Ísland.
Samkvæmt tilkynningu á vef stjórnarráðsins hefur Magnús verið virkur í félagsstörfum og hefur meðal annars setið í íslensku UNESCO-nefndinni, gegnt embætti formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna, setið í stjórn handknattleiksdeildar Víkings, gegnt embætti formanns Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík og setið í háskólaráði Háskólans í Reykjavík.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir