Þingmaður Sjálfstæðisflokks hótar stjórnarslitum vegna virkjunarmála

Jón Gunnarsson telur að umhverfis- og auðlinda­ráðherra í ríkis­stjórn sem Sjálfstæðis­flokkurinn á aðild að sé ekki að fylgja lögum í frið­lýsingum sínum. Hann vill virkja meira til að sjá fólki og fyrir­tækjum fyrir nægri ódýrri orku.

Jón Gunnarsson, er þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.
Jón Gunn­ars­son, er þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Ég get ekki séð að við þingmenn Sjálfstæðis­flokksins getum stutt stjórnar­samstarf sem fer fram með þessum hætti. Það er best að gera grein fyrir því strax.“ Þetta segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokks, í aðsendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Tilefni greinar­skrifa Jóns eru frið­lýsingar Guðmundar Inga Guðbrands­sonar, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, á grund­velli laga um ramma­áætlun. Jón telur þá aðferðar­fræði sem Guðmundur Ingi beiti þar standist enga skoðun og að margir hagsmuna­aðilar hafi fullyrt að ekki sé farið að lögum í þeirri útfærslu sem ráðherrann boði. „Ég er sammála því að verklag hans samræmist ekki lögunum. Í því sambandi má nefna að dettur einhverjum það í hug að Alþingi hafi framselt slíkt vald til eins manns, að hann geti að eigin geðþótta ákveðið friðlýsinga­mörk? Það er annarra að gera það og Alþingis að afgreiða samhliða ramma­áætlun hverju sinni. Skýrt dæmi um hvernig aðferða­fræði ráðherrans mun virka í raun er t.d. að ef engin virkjun væri í dag til staðar í Þjórsá og Alþingi hefði ákveðið að setja virkjunar­kostinn Urriða­foss í verndar­flokk myndi ráðherrann friða allt vatna­svæði Þjórsár frá jökli til ósa þannig að engin virkjun yrði reist við Þjórsá. Þetta er galin leið og gengur ekki upp.“

Síðan segir Jón að hann geti ekki séð hvernig þingmenn Sjálfstæðis­flokks geti stutt stjórnar­samstarf sem fari fram með þessum hætti.

Vill næga ódýra orku fyrir fólk og fyrirtæki

Í grein Jóns er einnig fjallað um það sem hann kallar forystu­leysi í orkumálum og það að hvorki hafi gengið né rekið, að hans mati, að koma málum í eðlilegan farveg þegar kemur að uppbyggingu dreifi­kerfis raforku og frekari orku­framleiðslu.

Átök hafi einkennt mála­flokkinn þrátt fyrir tilraunir stjórn­málamanna til að grípa til aðgerða sem leitt gætu til frekari sátta á „faglegum grunni“. Þau faglegu vinnu­brögð hafi hins vegar leitt af sér öngþveiti sem sé óásættanlegt. Það sé kynleg staða og óásættanleg sem orkumála­ráðherra Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, sé komin í þegar hún þurfi að ræða útfærslu á skerðingu á afhendingu raforku á næstu árum, líkt og hún hefur gert nýverið. „Í mínum huga er einfalda svarið við þeirri spurningu að á vakt Sjálfstæðis­flokksins kemur ekki til skerðinga í raforku­kerfi okkar. Við munum sjá til þess að heimili og fyrirtæki í þessu orkuríka landi hafi næga ódýra raforku og að sköpuð verði tækifæri til að byggja upp nýjungar í verðmæta- og atvinnu­sköpun um allt land. Í því sambandi má nefna tækifæri í matvæla­framleiðslu og uppbyggingu gagnavera, svo ekki sé talað um grunn­atvinnu­grein okkar, sjávar­útveg.“

Jón kallar eftir kröftugri og málefnalegri umræðu um nýtingu og vernd þegar kemur að orku­auðlindum á Íslandi. „Sú óstjórn sem þróast hefur getur ekki lengur viðgengist. Ég var í hópi þeirra þingmanna sem tókust í hendur þegar lög um ramma­áætlun voru samþykkt þver­pólitískt. Ég spyr mig og eflaust fleiri, hvernig gat þessi leið, sem svo víðtæk sátt var um að fara, ratað í aðrar eins ógöngur og raun ber vitni? Mitt svar við því er einfald­lega að það fylgdi ekki hugur máli hjá mörgum sem þó tóku þátt í þessu með okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár