Er Fidel Castro látinn? Orðrómur um andlát hans í fjölmiðlum

Óstaðfestar fregnir í fjöl­miðlum í Banda­ríkjunum, einkum í Florida ríki, herma að Fidel Castro sé látinn. Meðal fjölmiðla sem flutt hafa þessar fregnir eru Latin America Herald Tribune. Þessar fregnir hafa þó enn ekki verið stað­festar, en norska ríkis­útvarpið, NRK, segir yfirvöld á Kúbu hafa boðað til blaðamanna­fundar síðar í dag. Er frásögn fjöl­miðilsins Diario Las Americas, sem sinnir frétta­þjónustu einkum fyrir spænsku­mælandi hluta Miami borgar, höfð fyrir því að boðað hafi verið til blaðamanna­fundar.

Fidel Castro er 88 ára gamall, og hefur ekki sést opinber­lega frá því 8. janúar í fyrra, þegar heimsótti lista­sýningu í nágrenni heimili síns í Havana. Bróðir hans Raul tók við af honum árið 2006, sem forseti Kúbu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár