Ósammála um aðhaldskröfur

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vill slaka á aðhalds­kröf­unni í rík­is­fjár­málum en Vigdís Hauks­dóttir for­maður fjár­laga­nefndar er mót­fallin því. Aðhalds­krafan sem boðuð hefur verið í heil­brigð­is­kerf­inu á næsta fjár­laga­ári nemur meira en 700 millj­ónum króna.

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, er mót­fallin því að slakað verði á aðhalds­kröf­unni í rík­is­fjár­málum. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur hins vegar sagt í við­tali að aðhalds­krafan í heil­brigðis- og mennta­kerf­inu á næsta fjár­laga­ári verði minni en hún hefur verið auk þess sem engin slík krafa verði gerð í almanna­trygg­inga­kerf­inu.

 

Alþingi
Alþingi

Fram kom í við­tali Bjarna Bene­dikts­son í Morg­un­blað­inu þann 9. júlí síð­ast­lið­inn að stefnt væri að 0,5 pró­senta aðhalds­kröfu í heil­brigð­is­kerf­inu á fjár­laga­ár­inu 2016. Samkvæmt fjár­lögum árs­ins 2015 runnu um 147 millj­arðar króna til heil­brigð­is­mála. Til ein­föld­unar má því segja að aðhaldið sem ráð­herra vill ná fram á næsta fjár­laga­ári nemi meira en 700 millj­ónum króna. Sams konar aðhalds­krafa verður gerð í mennta­kerf­inu en kraf­ist verður 0,75 pró­senta aðhalds í öðrum mála­flokkum og ráðu­neyt­unum sem þeir heyra undir. Um er að ræða minni hag­ræð­ing­ar­kröfu í mennta- og vel­ferð­ar­kerf­inu en gerð hefur verið und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár