Vinstri græn yfir kjörfylgi í fyrsta sinn frá því að ný ríkisstjórn tók við

Vinstri græn hafa bætt við sig fjórum prósentu­stigum frá því í desember­mánuði, samkvæmt nýrri könnun frá Maskínu. Samfylkingin er þriðji stærsti flokkurinn samkvæmt könnuninni, en Píratar dala.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Vinstri græn mælast nú með meira fylgi en hreyfingin fékk í alþingis­kosningunum í lok september og myndu fá 12,9 prósent atkvæða, samkvæmt nýrri skoðana­könnun frá Maskínu sem birt var í dag. Þetta er í fyrsta sinn frá því að ný ríkis­stjórn var mynduð sem Vinstri græn mælast yfir kjörfylgi, en í könnun sem Maskína framkvæmdi í desember­mánuði mældist flokkurinn með 8,9 prósent og hefur því bætt við sig fjórum prósentu­stigum síðan þá.

Samfylkingin mælist þriðji stærsti flokkur landsins og er með 13,4 prósent fylgi, samkvæmt könnuninni, en flokkurinn fékk 9,9 prósent fylgi í kosningunum í september.

Tveir stærstu flokkarnir, Sjálfstæðis­flokkurinn og Framsóknar­flokkurinn, eru á svipuðum slóðum og í síðustu könnunum, en Sjálfstæðis­flokkurinn bætir við sig og mælist nú með 21,9 prósent fylgi og Framsókn 16,9 prósent. Báðir mælast flokkarnir undir kjörfylgi sínu frá því í september.

Píratar dala um rúm þrjú prósent

Fylgi stjórn­málaflokka á landsvísu er að mestu nokkuð stöðugt á milli mánaða. Mesta sveiflan á er þó hjá Pírötum, sem mælast nú með 10,3 prósent fylgi, sem er samdráttur um 3,2 prósentu­stig frá könnun Maskínu í janúar­mánuði.

Aðrir flokkar eru innan við tíu prósentin. Viðreisn bætir aðeins við sig fylgi frá síðustu könnun og mælist nú með 9,7 prósent fylgi. Flokkur fólksins dalar hins vegar ögn og mælist nú með 7,6 prósent fylgi.

Miðflokkurinn og Sósíalista­flokkurinn mælast svo með 3,9 og 3,5 prósent fylgi, sem er nær alveg það sama og í síðustu könnun Maskínu. Sósíalista­flokkurinn mældist með 7,5 prósent fylgi í könnun Maskínu í desember, en fylgi við flokkinn hefur rúmlega helmingast síðan.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá. Hún var lögð fyrir á netinu. Svarendur voru alls staðar af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri.

Svör voru vegin samkvæmt mann­fjöldatölum Hagstofunnar. Könnunin fór fram dagana 28. janúar til 16. febrúar 2022 og tóku 3.039 svarendur afstöðu til flokks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár