Tugþúsundir Breta á bótum víða um Evrópu

Atvinnu­lausir Bretar í Evrópu fá miklu hærri upphæðir í bætur og styrki í öðrum ríkum Evrópu­sambands­ríkjum en íbúar þessara landa fá í bætur í Bretlandi. Þetta kemur í ljós í nýrri rannsókn breska blaðsins Guardian.

Að minnsta kosti 30 þúsund breskir ríkis­borgarar eru á atvinnu­leysis­bótum í ýmsum ríkjum ESB. Þetta eru um 2,5 prósent Breta í öðrum ríkjum ESB. Fjöldi atvinnu­lausra Evrópubúa í Bretlandi er um 65 þúsund, sem er svipað hlutfall af fjölda. Svör bárust frá 23 af þeim 27 ríkjum sem um ræðir.

Niður­stöður rann­sóknarinnar eru þvert á yfir­lýsingar breskra stjórn­valda um að fólk í öðrum ESB-ríkjum flykkist til Bretlands til þess að komast á hærri bætur, að mati Guardian.

Cameron vill semja um innflytjendur


David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, vill semja um það sem hann kallar umbætur á reglum Evr­ópu­sam­bands­ins um frjálst flæði fólks innan sam­bands­ins. Þetta er meðal þess sem hann vill breyta og semja um upp á nýtt við ESB, en hann seg­ist svo ætla að bera aðild Bret­lands að ESB undir þjóð­ina árið 2017 ef hann verður enn við völd.

Þessum tilraunum hefur víðast hvar verið illa tekið í Evrópu, enda fjór­frelsið meðal grundvallar­atriða í Evrópu­sambandinu.

Það mun koma í hlut Donald Tusk að semja við Bretland fyrir hönd ESB, en hann er fyrrum forsætis­ráðherra Póllands. Pólverjar eru stærsti einstaki hópur útlendinga sem fær atvinnu­leysis­bætur í Bretlandi, eða 15 þúsund manns. Ólíklegt er talið að Tusk muni samþykkja nokkrar breytingar sem munu koma þessu fólki illa.

Allt önnur mynd innflytjenda


Skjáskot af síðu Guardian.

Skjáskot af síðu Guardian.
Skjáskot af síðu Guardian.

Gögnin sem Guardian hefur tekið saman sýna allt aðra mynd en hefur verið haldið á lofti í Bretlandi, þar sem hávær umræða hefur verið um að fólk frá öðrum ríkjum Evrópu­sambandsins komi þangað til að leggjast á breska bóta­kerfið og fá hærri bætur. Það er ekki síst sjálfstæðis­flokkurinn UKIP sem hefur haldið þessu á lofti.

Fjórum sinnum fleiri Bretar þiggja bætur í Þýska­landi en öfugt, og fimm sinnum fleiri Bretar þiggja bætur á Írlandi en Írar í Bretlandi.

Bætur víða í Evrópu eru þar að auki mun hærri en í Bretlandi. Breti í Frakk­landi fær um það bil þrisvar sinnum meira í atvinnu­leysis­bætur en Frakki fengi í Bretlandi.

Um þrisvar sinnum fleiri Bretar þiggja bætur í Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku, Belgíu, Lúxemborg, Þýska­landi, Austur­ríki, Frakk­landi og Írlandi en ríkis­borgarar sömu landa gera í Bretlandi.

„Yfir­gnæfandi meirihluti Breta í útlöndum rétt eins og aðrir Evrópu­búar í Bretlandi er ekki byrði á ríkjunum sem þeir búa í,“ segir Roxana Barbulescu sérfræðingur í innflytjenda­málum hjá háskólanum í Sheffield við Guardian.

Mjög fáir Bretar eru aftur á móti á bótum í Austur-Evrópu. Hins vegar leiða tölur Guardian einnig í ljós að fjöldi bótaþega frá þessum ríkjum í Bretlandi er ekki mjög mikill. Um þúsund Rúmenar og 500 Búlgarar fá atvinnu­leysis­bætur í Bretlandi. Sem fyrr segir er lang stærsti hópurinn Pólverjar, en næst á eftir eru tæplega 6.700 Slóvakar og svo 6.210 Portúgalar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár