Þetta eru tuttugu og tvö óhamingjusömustu, fátækustu og hættulegustu ríki heims

Velmegunar­listi Legatum sýnir ekki aðeins velmegun á Íslandi heldur einnig þau lönd heimsins sem búa við minnsta velmegun.

Breska stofnunin Legatum birti í vikunni uppfærðan lista yfir velmegun landa heimsins. Eins og greint var frá á frétta­síðu RÚV þá er Ísland í 12. sæti listans en Noregur skipar efsta sætið, sjöunda árið í röð.

Frétta­síðan Business Insider hefur birt umfjöllun um þau lönd sem skipa neðstu sætin á velmegunar­listanum. Við niður­röðun notast Legatum við alls 89 mismun­andi breytur til að fanga stöðu velmegunar í hverju landi, allt frá atvinnu­leysis­tölum til persónulegra spurninga­lista um pólítískt frelsi þegna landsins. Löndin neðst á listanum eru, samkvæmt mælingum bresku stofnunarinnar, þau óhamingju­sömustu, fátækustu, óheilbrigðustu og hættulegustu í heiminum í dag.

Annað árið í röð er Mið-Afríku­lýðveldið (CAR) neðst á lista. Í þremur af átta flokkum listans skoraði landið minnst allra, í frumkvöðla­starfsemi og tækifærum, menntun, og heilsu.

Listann má sjá hér:

22. Máritanía

21. Malaví

20. Írak

19. Sierra Leone

18. Nígería

17. Kongó

16. Eþíópía

15. Zimbabwe

14. Tógó

13. Pakistan

12. Gínea

11. Líbería

10. Angóla

9. Súdan

8. Jemen

7. Sýrland

6. Vestur-Kongí

5. Búrúndí

4. Tsjad

3. Haítí

2. Afganistan

1.Mið-Afríku­lýðveldið

Umfjöllum Business Insider.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár