Draumurinn í Noregi breytist í martröð

Þúsundir Íslend­inga fluttu til Noregs í kjöl­far hruns­ins. Á meðan flestum tókst að byrja nýtt líf hafa ein­hverjir átt erfitt upp­dráttar, stofnað til skulda og í ein­hverjum til­fellum misst börn sín til norskra yfir­valda.

Vandræði í Noregi
Vandræði í Noregi Þótt meg­in­þorra Íslend­inga gangi vel að hefja nýtt líf í Noregi eru fjöl­margir sem lenda í vand­ræðum.

Hrunið á Íslandi varð til þess að þús­undir Íslend­inga pökk­uðu saman eigum sínum og flutt­ust búferlum utan. Í þeim flutn­ingum var Noregur vin­sælt land til þess að skjóta niður nýjum rótum og byrja lífið upp á nýtt; skuld­laus og án allra áhyggja. Ein­hverjir flúðu skuldir á meðan öðrum hugn­að­ist ekki sá raun­veru­leiki sem blasti við eftir að fjár­mála­kerfi lands­ins bók­staf­lega bræddi úr sér. Sumir end­uðu á leigu­mark­aði eftir að hafa misst húsin sín sem keypt voru með erlendum mynt­körfum á meðan aðrir ein­fald­lega end­uðu á göt­unni. Draumur um nýtt upp­haf í svo til óþekktu landi var heill­andi en eins og Stundin hefur kom­ist að hefur sá draumur breyst í martröð fyrir fjöl­marga Íslend­inga.

Samkvæmt hinni norsku hag­stofu voru 9.573 Íslend­ingar með skráða búsetu í Noregi þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn og er það fjölgun frá því í fyrra þegar 9.218 voru þar skráðir. Í lang­flestum til­vikum er um að ræða harð­dug­lega, vinnu­sama og ábyrga Íslend­inga en það hefur þó færst í auk­ana að ein­hver hluti þeirra kemst í kast við lögin eða lendir í miklum skuldum sem þeir ein­fald­lega ráða ekki við. Þeim Íslend­ingum sem lenda í vand­ræðum í Noregi má að stórum hluta skipta upp í tvo hópa. Annars vegar þeir sem hafa á óábyrgan hátt stofnað til skulda sem þeir hvorki ráða við né höfðu aldrei ætlað að greiða og hins vegar þá sem norsk yfir­völd hafa þurft að hafa afskipti af vegna ýmissa mála er við koma barna­vernd þar í landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár