Höfundarréttur Afmælissöngsins ógiltur

Útgáfu­fyrirtæki Warner/Chappel, dóttur­félag Warner Music Group, á ekki lengur höfundar­réttinn að Afmælis­söngnum, sem á ensku heitir „Happy Birthday to You“, samkvæmt niður­stöðu héraðs­dóms í Los Angeles borg í Banda­ríkjunum í gær. Lagið er vinsælasta lagið sungið á ensku.

Í umfjöllun New York Times um málið segir að ef niður­staða héraðs­dómara fæst staðfest þá sé hún nokkuð högg fyrir Warner/Chappel. Fyrir­tækið hefur átt útgáfu­rétt lagsins frá árinu 1988 og innheimtir árlega um tvær milljónir dollara fyrir afspilun lagsins í sjónvarpi og kvik­myndum, eins og um hvert annað lag í þeirra eigu sé um að ræða. Upphæðin jafn­gildir um 260 milljónum króna.


Dóms­niðurstaða í málinu telur alls 43 blaðsíður og reifar dómari meðal annars flókna sögu lagsins og slóð höfunda­réttar­skráninga sem ná meira en öld aftur í tímann. Er það niður­staða dómara að höfunda­réttur lagsins sé útrunninn og eigi ekki rétt á sér.


Upphaf málsins má rekja til kæru Jennifer Nelson árið 2013. Nelson er sjálfstæð kvikmynda­gerðarkona og ætlaði að gera heimildar­mynd um Afmælis­sönginn. Það gat hún ekki vegna réttinda­mála. Í umfjöllun New York Times segir Nelson að niður­staða dómara sé mikill sigur fyrir tónlistar­fólk, listamenn og aðra sem hafa beðið í áratugi eftir þessari niður­stöðu. Hún sé ánægð með að lagið sé nú í eigu almennings, eins og það á að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár