Pútín fyrirskipar rannsókn - Skelfilegar aðstæður á vettvangi

Enginn af þeim 224 sem var um borð í flugvél rússneska flug­félagsins Kogalymavia, í flugi númer KGL9268, komst lífs af þegar flugvélin fórst í Egypta­landi í morgun, en hún var á leið frá Sharm el-Sheikh við Rauða­hafið til St. Péturs­borgar. Hún fórst um tuttugu og tveimur mínútum eftir flugtak.

Vladímir Pútín, forseti Rússlands, hefur lýst yfir þjóðar­sorg í Rússlandi og fyrir­skipað rannsókn á orsökum þess að vélin fórst. Nær allir um borð voru Rússar, aðallega ferðamenn. Þrír einstaklingar frá Úkraínu voru um borð, af þeim 217 farþegum sem voru í vélinni. Áhöfnin vélarinnar taldi sjö talsins.

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC voru 138 konur í vélinu og sautján börn á aldrinum tveggja til sautján ára. Aðstæður á vettvangi slyssins er sagðar skelfilegar. Hin svokallaði svarti kassi, sem geymir upplýsingar um samskipti og aðgerðir flugmanna, er þegar fundinn og hefur verið fjar­lægður af vettvangi til rann­sóknar.

Pútín hefur farið fram á að rússneskt rannsóknar­teymi fari strax á vettvang til að stýra sjálf­stæðri rannsókn. Ekkert hefur verið gefið upp um ástæður þess að vélin fórst, enda rannsókn á frumstigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár