Gríðarleg fjölgun tilkynninga um nauðganir

Að jafnaði var tilkynnt um 21 nauðgun á mánuði fyrstu sex mánuði ársins. Mikil aukning hefur orðið á tilkynningum um kynferðis­lega áreitni og brot gegn kynferð­is­legri friðhelgi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ríkis­lögreglu­stjóra um kynferðis­brot.

125 tilkynningar
125 til­kynn­ingar Íslensku lög­regl­unni bár­ust 125 til­kynn­ingar um nauðg­anir á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Mynd: Eyþór Árnason

Lögreglu bárust tilkynningar um 125 nauðganir á fyrstu sex mánuðum ársins. Það er 25 prósent fjölgun í tilkynningum frá árinu 2021. Að jafnaði var tilkynnt um 21 nauðgun á mánuði á tíma­bilinu. Þá hefur orðið mikil aukning á tilkynningum um kynferðis­lega áreitni og brot gegn kynferðislegri friðhelgi.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ríkis­lögreglu­stjóra um kynferðis­brot. Þar kemur fram að ef tilkynningar til lögreglunnar fyrstu sex mánuði yfir­standandi árs eru bornar saman við síðustu þrjú ár þar á undan þá fjölgar skráðum nauðgunum um 30 prósent.

Af þeim 125 tilkynningum sem um ræðir áttu 83 þeirra sér stað á umræddu sex mánaða tímabili. Það jafn­gildir því að tilkynnt hafi verið um 14 nauðganir á mánuði og samsvarar það 1 prósents fækkun frá sama tíma í fyrra. Fjöldi grunaðra í nauðgunar­málum var 148, þar af 143 karlmenn og 5 konur.

Í heild var tilkynnt um 328 kynferðis­brot á tíma­bilinu sem er nokkru minna en á sama tímabili í fyrra en þá var tilkynnt um 358 kynferðis­brot á sama tímabili. Það jafn­gildir um 9 prósenta fækkun tilkynninga milli ára. Hins vegar er það um 5 prósenta fjölgun á skráningum ef miðað er við meðaltal síðustu þriggja ára á undan.

Tilkynningum um kynferðis­lega áreitni og brot gegn kynferðislegri friðhelgi fjölgaði milli ára og voru þau 64 á tíma­bilinu. Að jafnaði var tilkynnt um 36 slík brot á sama tímabili síðustu þrjú ár þar á undan og er aukningin á tilkynningum því um 78 prósent.

Tilkynnt var um 63 kynferðis­brot gegn börnum á fyrri hluta ársins, sem er nokkru færra en árið 2021 þegar tilkynnt var um 84 slík brot. Að meðaltali var tilkynnt um 68 slík brot á þriggja ára tímabili þar á undan.

Fjöldi grunaðra í öllum kynferðis­brotum á fyrstu sex mánuðum ársins var 272, 95 prósent þeirra karlmenn. Þriðjungur þeirra var undir 25 ára aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár