Ofbeldi á ekki að vera skilyrði

Dóm­stólar eru of tregir við að dæma fólk í nálg­un­ar­bann að mati lög­manns Kvenna­at­hvarfs­ins. Lögin séu skýr með að röskun á friði séu nóg til að rétt­læta það. Kæru eða hótun um ofbeldi ætti ekki að þurfa til.

Lögin eru skýr
Lögin eru skýr Elva Dögg Ásu- og Krist­ins­dóttir segir lög um nálg­un­ar­bann og brott­vísun af heim­ili skýr. Samkvæmt þeim megi ekki raska ró fólks og það eitt og sér ætti að duga til að dæma mann­eskju í nálg­un­ar­bann. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sá maður sem mis­gert er við, brota­þoli, fjöl­skylda hans eða annar honum nákom­inn, getur borið fram beiðni til lög­reglu um að maður, sak­born­ingur, sem brotið hefur gegn honum eða raskað friði hans á annan hátt, sæti nálg­un­ar­banni og/eða brott­vísun af heim­ili.

Þannig hljómar þriðja grein laga um nálg­un­ar­bann og brott­vísun af heim­ili. Af grein­inni mætti ætla að ofbeldi sé ekki nauð­syn­legt til að beita megi úrræð­inu, heldur geti verið nóg að raska friði ein­stak­lings­ins sem í hlut á. Á þetta bendir Elva Dögg Ásu- og Krist­ins­dóttir, lög­maður Kvenna­at­hvarfs­ins. „Það er skýrt í lög­unum að það ætti að vera nóg að raska friði fólks til að óska eftir nálg­un­ar­banni. Refsi­vert athæfi þarf ekki að hafa komið til. En þrátt fyrir að þetta sé skýrt í lögum er eins og það þurfi alltaf að liggja fyrir kæra hjá lög­reglu og jafn­vel mörg dæmi um brot, til þess að hún …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár